Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 26. apríl 2026 22:40 Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins og Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi tókust á í Sprengisandi í morgun. Skjáskot Hart var á tekist þegar oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í Kópavogi mættu í Sprengisand í morgun. Raunar svo hart að átökin urðu líkamleg, ef svo má segja. Ásdís Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs varð svo um þegar Jónas Már gerði atlögu að orðinu að hún potaði í hann.
Oddvitar tveggja stærstu flokkanna í Kópavogi munnhjuggust um velferðarmálin, leikskólamálin og ársreikningin í Sprengisandi á Bylgjjunni í morgun. Þau mættu klár í slaginn bæði tvö og kepptust um orðið og að segja fullyrðingar andstæðingsins rangar. Lesa má greinargóða úttekt á því sem fór oddvitanna á milli í fréttinni hér að neðan. Það snögghitnaði hins vegar í kolunum þegar Ásdís Kristjánsdóttir vatt sér að ávinningi af rekstri bæjarins. Hún sagði hann fólginn í bættri þjónustu og lægri fasteignagjöldum en þá gat Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, ekki á sér staðið. „Ég verð að fá að leiðrétta því hún er að segja ósatt,“ sagði hann og þá fauk verulega í Ásdísi. Klippa: Framíkalli svarað með poti Þeir sem hlustuðu á þáttinn í útvarpi hafa ekki orðið vör við annað en mælskubrögðin en þau dugðu ekki í þetta skiptið. Ásdís, í von um að fá aftur orðið eftir þetta óumbeðna innskot, potaði tvisvar í höndina á andstæðingi sínum. „Mér finnst þetta svo vondur ávani hjá Jónasi. Hann grípur alltaf fram í fyrir mér. Ég leyfi þér að tala, leyfð þú þá mér að tala,“ segir Ásdís og Kristján þáttastjórnandi segir að koma muni að Jónasi Má senn.
Kópavogur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Sprengisandur Mest lesið Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Sjá meira