Sport

Ofurhlaupari lést á skoska há­lendinu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
David Parrish er látinn.
David Parrish er látinn. david parrish

Ofurhlauparinn David Parrish reyndi að bæta tímamet í einu erfiðasta hlaupi heims í hálöndum Skotlands en lést á leiðinni.

Parrish lagði af stað á Cape Wrath leiðina, sem teygir sig um 376 kílómetra yfir hálendi Skotlands. Hann hafði áður hlaupið Cape Wrath leiðina en ekki einn síns liðs.  

Parrish fannst látinn síðasta laugardag en viðvörunarbjöllur fóru af stað þegar GPS-mælir hans hætti að sýna hreyfingu.

Í tilkynningu lögreglu segir að ekkert grunsamlegt bendi til andlátsins. Cape Wrath leiðin þykir einstaklega erfið en á löngum köflum eru vegirnir tættir og hlaupið teygir sig alla leið yfir Knoydart-höfða og Torridon-fjalltindana.

Parrish tók þátt í Cape Wrath Ultra hlaupinu árið 2023 en fór leiðina einn síns liðs að þessu sinni. david parrish

„Reyndur fjallagarpur lést sorglega við að gera það sem hann elskar,“ segir í tilkynningu Kintail hlaupaklúbbsins sem Parrish tilheyrði en The Guardian fjallar um andlátið.

Núverandi methafi hlaupsins, ofurhlauparinn Pawel Cymbilista, var illa sleginn eftir að hafa frétt af andlátinu.

„Þetta snerti mig djúpt. David var í sambandi við mig áður en hann fór og ég studdi hann í að eltast við metið. Ég vissi hvað hann væri að fara út í í þessu hlaupi. Að hlaupa þessa leið einn, án stuðnings, skapar miklar áhættur,“ sagði Cymbilista.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×