„Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Jakob Bjarnar skrifar 16. apríl 2026 11:03 Sjálfstæðismenn eru afar ósáttir við að Kristrún Frostadóttir hafi sem forsætisráðherra lofað framlögum úr ríkissjóði til leikskólamála, sem eru á hendi sveitarstjórna. Kristrún sagði að svona væri þetta á öllum Norðurlöndunum, hvers vegna ekki hér? vísir/vilhelm Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hélt áfram að hamast í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna kosningafundar Samfylkingarinnar í Kópavogi en Sjálfstæðismenn vilja meina að þar hafi Kristrún lofað um 15 milljörðum árlega úr ríkissjóði í kosningaloforð Samfylkingar á sveitarstjórnarstigi.
Þetta var í óundirbúnum fyrirspurnum á þinginu en Guðrún sagði að Kristrún hefði þar kynnt, undir merkjum ábyrgðar og stórra fyrirheita, kostnaðarsamt loforð um brúun bilsins milli fæðingarorlofs og leikskóla. Hvar á að finna þessa um 15 milljarða króna? „Á vefsíðu Samfylkingarinnar er þetta kynnt eins og um raunverulegar og fjármagnaðar aðgerðir sé að ræða sem komi til framkvæmda í skrefum á næstu árum. Það stangast á við orð hæstvirts fjármálaráðherra í Morgunblaðinu í gær sem sagði skýrt að ekki væri gert ráð fyrir þessum útgjöldum í fjármálaáætlun ríkisins. Og við höfum jafnframt heyrt að hæstvirtur ráðherra málaflokksins lýsa því yfir að Flokkur fólksins sé ekki með sömu stefnu og Samfylkingin í þessum efnum,“ sagði formaður Sjálfstæðisflokksins. Efni fyrirspurnar Guðrúnar er í takti við ræðu varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins, Tómasar Þórs Þórðarsonar, þar sem hann hjó í sömu knérunn. Guðrún spurði hvort Kristrún hefði upplýst ríkisstjórnina um þetta tiltekna kosningaloforð áður en hún kynnti það opinberlega í Kópavogi og þá á hún ekki við kynningu á skýrslu aðgerðarhóps um að brúa bilið, heldur nákvæmlega þetta loforð og þessa tilteknu útfærslu. „Hvar á að finna þessa um 15 milljarða króna sem þetta mun kosta, ef peningarnir eru ekki í fjármálaáætlun? Er þetta þá stefna ríkisstjórnarinnar, eða aðeins stefna Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarkosningum? Og finnst hæstvirtum forsætisráðherra eðlilegt að lofa 15 milljarða útgjöldum þegar hæstvirtur fjármálaráðherra segir daginn eftir að ekki sé gert ráð fyrir þessu í fjármálaáætlun?“ Kristrún stolt af þessu útspili Kristrún þakkaði Guðrúnu fyrir að vekja athygli á þessu útspili Samfylkingarinnar. Skýrsla þessa efnis hefði verið kynnt innan ríkisstjórnarinnar og hún væri ánægð með niðurstöðuna sem þar kom fram. „Ég er hlynnt því að ríkið komi að rekstri leikskóla, rétt eins og er á öllum Norðurlöndum,“ sagði Kristrún. Hún sagðist ekki vita hvaðan þessar tölur væru komnar sem Guðrún nefndi en jú, kostnaður af þessu gæti verið 10 milljarðar, þetta væri nettókostnaður því á móti kæmi ýmislegt hagfellt eins og það að fólk missti síður úr vinnu, sem þýddi auknar skatttekjur. Hún trúði því ekki að fólk væri ekki sammála því að vert væri að fara í þessa vegferð. Guðrún taldi Kristrúnu ekki hafa svarað spurningunni.vísir/vilhelm „Ég er stolt af þessu útspili, ég vil þak á leikskólagjöld og hundrað prósenta systkinaafslátt. Ég hvet fólk til að kynna sér útspilið.“ Guðrún taldi hér engu svarað „frekar en fyrri daginn“. Hún sagði engan ágreining um að vilja létta líf ungra fjölskyldna. Það sé aðferðin: „Það sem gerir þetta alvarlegt er ekki bara upphæðin heldur aðferðin. Hér virðist hæstvirtur forsætisráðherra hafa stigið fram – í krafti embættis síns – með kosningaloforð fyrir eigin flokk án þess að gert sé ráð fyrir því í fjármálaáætlun og án þess að nokkur samstaða sé um tillögurnar innan ríkisstjórnarinnar. Þetta er ekki í lagi.“ Ég er ekki bara forsætisráðherra Kristrún ítrekaði að um væri að ræða stefnu Samfylkingarinnar. „Ég er ekki aðeins forsætisráðherra heldur formaður Jafnaðarflokks Íslands. Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér.“ Kristrún sagði að stefnan kæmist ekki á nema til væri fólk á sveitarstjórnarstigi sem talaði fyrir þessu og hún taldi hér verið að ræða form útspilsins fremur en innihald. Hún spurði á móti hver væri afstaða formanns Sjálfstæðisflokksins í málinu. „Má ég ekki lengur tala fyrir stefnu Samfylkingarinnar? Af hverju getum við ekki gert þetta sem Norðurlöndin gera?“
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar Sjálfstæðismenn telja leikskólaloforð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, sem hún kynnti á laugardag í Kópavogi, lið í kosningabaráttu flokksins á sveitarstjórnarstiginu og krefja Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, skýringa á því hvernig hún hyggst efna það? 13. apríl 2026 16:33 Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa ekki vakið hrifningu innan bankanna eða verkalýðshreyfingarinnar. Innt eftir viðbrögðum segir Kristrún Frostadóttir útspilið sem kynnt var í gær væri framlag ríkisstjórnarinnar til þess að „breyta umræðunni og breyta því skjóli sem felst í því að við tölum okkur upp í verðhækkanir“. 11. apríl 2026 13:27 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar Sjálfstæðismenn telja leikskólaloforð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, sem hún kynnti á laugardag í Kópavogi, lið í kosningabaráttu flokksins á sveitarstjórnarstiginu og krefja Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, skýringa á því hvernig hún hyggst efna það? 13. apríl 2026 16:33
Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Nýkynntar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa ekki vakið hrifningu innan bankanna eða verkalýðshreyfingarinnar. Innt eftir viðbrögðum segir Kristrún Frostadóttir útspilið sem kynnt var í gær væri framlag ríkisstjórnarinnar til þess að „breyta umræðunni og breyta því skjóli sem felst í því að við tölum okkur upp í verðhækkanir“. 11. apríl 2026 13:27