Banna íbúðakaup til öskugeymslu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 31. mars 2026 11:41 Vegna takmarkaðs jarðnæðis í stórborgum hafa sumar þeirra, líkt og Shanghai, hafið að bjóða þeim ívilnanir sem láta jarðsetja ástvini sína djúpt í jörðu eða dreifa ösku þeirra úti á sjó. Getty Stjórnvöld í Kína hyggjast setja lög til að sporna við því að fjölskyldur fjárfesti í íbúðum til að geyma ösku ástvina sinna fremur en að koma hinum jarðnesku leyfum fyrir í þar til gerðum grafreit.
Samkvæmt lögunum verður óheimilt að nota íbúðarhúsnæði til að geyma ösku og þá verður óheimilt að reisa grafhýsi eða grafa líkamsleifar annars staðar en í opinberum grafreitum. Lögin taka gildi í vikunni en næstkomandi sunnudag halda Kínverjar Qingming-hátíðina, þar sem þeir heimsækja grafir ástvina sinna, hreinsa til í kringum þær og færa táknrænar fórnir. Tilgangur lagasetningarinnar er að koma í veg fyrir að landsmenn fjárfesti í svokölluðum „guhui fang“; „beinaöskuíbúðum“. Um er að ræða íbúðir sem fjölskyldur fjárfesta í til að nota sem geymslu fyrir ösku liðinna kynslóða, sem skreyttar er kertum og öðru tilheyrandi til að skapa hátíðlega stemningu. Guhui fang hafa notið vaxandi vinsælda sökum öldrunar þjóðarinnar og takmörkuðum og dýrum plássum í grafreitum stórborga landsins. Útfararkostnaður er hæstur í Japan og næsthæstur í Kína en á sama tíma lækkaði íbúðaverð í Kína um 40 prósent á árunum 2021 til 2025. Þá spilar einnig inn í að grafreitir eru aðeins leigðir út til 20 ára en öllum íbúðum fylgir 70 ára notkunarréttur. Netverjar í Kína eru nú sagðir velta vöngum yfir því hvernig yfirvöld hyggjast framfylgja banninu. „Ætla þeir að setja GPS tæki á hvert einasta duftker?“ spyr einn, samkvæmt Guardian.
Kína Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Sjá meira