Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Kristján Már Unnarsson skrifar 26. mars 2026 21:21 Rangæingurinn Dofri Eysteinsson, eigandi Suðurverks, og Árnesingurinn Jón Örn Ingileifsson, eigandi Fossvéla, buðu saman í næsta verkþátt Hvammsvirkjunar og reyndust lægstbjóðendur. Sigurjón Ólason Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar.
Fjallað var um verkefnið í kvöldfréttum Sýnar en Landsvirkjun hóf undirbúningsframkvæmdir vegna Hvammsvirkjunar í fyrra. Núna í sumar á að halda verkinu áfram með umfangsmikilli jarðvinnu. „Við höldum áfram að vinna í frárennslisskurði og hefjum mokstur fyrir stöðvarhúsi, inntaki og flóðgáttum,“ segir Guðbjartur Jón Einarsson, verkefnastjóri Landsvirkjunar við Hvammsvirkjun. Svona mun stöðvarhús Hvammsvirkjunar líta út. Fjær sjást stíflan í Þjórsá og lónið sem myndast ofan hennar.Landsvirkjun Sex tilboð bárust, það lægsta sameiginlegt boð frá Fossvélum og Suðurverki upp á 896 milljónir króna, sem var einungis 64% af 1.405 milljóna króna kostnaðaráætlun. Verksamningur var undirritaður í höfuðstöðvum Landsvirkjunar í dag en verktakarnir teljast báðir Sunnlendingar. „Já, það er mjög ánægjulegt að fá nágranna okkar í þetta verkefni. Fossvélar voru með okkur í fyrri samningi á síðasta ári og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs með þeim og Suðurverki,“ segir Guðbjartur í sjónvarpsfréttinni sem sjá má hér með viðtali við káta Sunnlendinga: Dofri Eysteinsson, eigandi Suðurverks, er Rangæingur og Jón Örn Ingileifsson, eigandi Fossvéla, er Árnesingur. Við spurðum hvort það væri ekki vel við hæfi að Sunnlendingar taki þetta verk í ljósi þess að athafnasvæðið er beggja vegna við Þjórsá. „Jú, jú, þetta er svona táknrænt sko,“ svarar Jón Örn. „Já, já, þetta er gott,“ svarar Dofri. Stíflan, inntakslónið og stöðvarhúsið.Landsvirkjun Og segja báðir að verkið leggist vel í þá. Kærumálum vegna Hvammsvirkjunar er þó ekki lokið. „Það er, eftir því ég best veit, ein kæra núna í gangi vegna virkjunarleyfisins,“ segir Guðbjartur hjá Landsvirkjun en kveðst þó bjartsýnn á að hægt verði að bjóða út stærstu verkþættina síðar á árinu. „Bara í besta falli öðru hvoru megin við sumarfrí.“ Frárennslisskurðurinn til hægri.Landsvirkjun Og verktakarnir voru leystir út með listaverki frá Koggu með þessum orðum verkefnastjóra Landsvirkjunar: „Þetta egg á að tákna þetta samstarf okkar. Við erum að vinna saman í náttúrunni og þurfum að fara vel með hana. Eggið er náttúrulega bara brothætt en samt sterkt. Það er svona merki um okkar samstarf.“ Guðbjartur Jón Einarsson, verkefnastjóri við Hvammsvirkjun, afhenti fulltrúum verktakanna egg sem táknræna gjöf um brothætta en sterka náttúruna.Sigurjón Ólason Dofri Eysteinsson er einn mesti reynslubolti verktakageirans, orðinn 78 ára gamall. Honum líst vel á samstarfið við Árnesinginn. „Þetta bara á að geta gengið vel hjá okkur Jóni. Við höfum báðir trú á hvor öðrum til þessa verks. Og ég er ekki í neinum vafa með það. Þetta flýtur vel undan okkur. Og okkar mönnum,“ segir Dofri. -Þér finnst gott að vinna með svona öldungum? „Já, já, í fylgd með fullorðnum,“ svarar Jón Örn. „Já, já. Maður eldist aldrei í þessu,“ segir Dofri. Fulltrúar Landsvirkjunar, Fossvéla og Suðurverks stilltu sér upp fyrir hópmyndatöku að lokinni undirritun verksamnings. Fremst sitja: Dofri Eysteinsson, framkvæmdastjóri Suðurverks, Guðbjartur Jón Einarsson, verkefnisstjóri hjá Landsvirkjun og Jón Örn Ingileifsson, forstjóri Fossvéla. Fyrir aftan standa: Sigrún Elva Reynisdóttir, sérfræðingur í innkaupum hjá Landsvirkjun, Guðmundur Ólafsson, verkefnisstjóri hjá Suðurverki, Elísabet Edda Guðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Fossvéla og Páll Halldór Björgúlfsson, verkefnastjóri nýframkvæmda hjá Landsvirkjun.Sigurjón Ólason
Landsvirkjun Deilur um Hvammsvirkjun Rangárþing ytra Skeiða- og Gnúpverjahreppur Byggingariðnaður Vatnsaflsvirkjanir Orkumál Umhverfismál Lax Stangveiði Árborg Rangárþing eystra Grímsnes- og Grafningshreppur Ásahreppur Flóahreppur Tengdar fréttir Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun vonast til að endanlegt framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fáist í næsta mánuði og að smíði hennar fari þá á fulla ferð. Fyrirtækið hyggst jafnframt hefja stækkun þriggja eldri virkjana í ár. 22. janúar 2026 21:48 Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Umhverfis- og orkustofnun hefur endurútgefið virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Fyrra leyfi var fellt úr gildi með dómi Hæstaréttar í júlí. Formaður Náttúrugriða segir nokkuð öruggt að náttúruverndarsamtök og landeigendur reyni að fá leyfinu hnekkt. 13. desember 2025 14:43 Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Tæp sextíu prósent svarenda í skoðanakönnun segjast hlynnt Hvammsvirkjun í Þjórsá en aðeins rúmur fimmtungur er andsnúinn. Gríðarlegur munur er á afstöðu kynjanna til virkjunarinnar en mun fleiri karlar eru fylgjandi henni en konur. 9. september 2025 11:15 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Sjá meira
Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun vonast til að endanlegt framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fáist í næsta mánuði og að smíði hennar fari þá á fulla ferð. Fyrirtækið hyggst jafnframt hefja stækkun þriggja eldri virkjana í ár. 22. janúar 2026 21:48
Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Umhverfis- og orkustofnun hefur endurútgefið virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar. Fyrra leyfi var fellt úr gildi með dómi Hæstaréttar í júlí. Formaður Náttúrugriða segir nokkuð öruggt að náttúruverndarsamtök og landeigendur reyni að fá leyfinu hnekkt. 13. desember 2025 14:43
Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Tæp sextíu prósent svarenda í skoðanakönnun segjast hlynnt Hvammsvirkjun í Þjórsá en aðeins rúmur fimmtungur er andsnúinn. Gríðarlegur munur er á afstöðu kynjanna til virkjunarinnar en mun fleiri karlar eru fylgjandi henni en konur. 9. september 2025 11:15