Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. mars 2026 06:38 Olíuskip bíða eftir því að komast um sundið. AP/Altaf Qadri Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur varað við því að framtíð Atlantshafsbandalagsins sé í húfi komi bandamenn ekki til aðstoðar við að greiða fyrir opnun Hormuz-sunds.
Sagði hann Nató eiga „afar slæma“ framtíð fyrir sér ef til þess kæmi, samkvæmt Financial Times. Þá nefndi hann Evrópu sérstaklega og vísaði til þess að Bandaríkin hefðu komið Úkraínu til aðstoðar jafnvel þótt hún væri langt í burtu. Nú myndi koma í ljós hvort Evrópuríkin stæðu sína pligt. „Ég hef lengi sagt að við munum vera til staðar fyrir þau en þau munu ekki vera til staðar fyrir okkur,“ sagði forsetinn. Trump sagði um helgina að hann hefði krafist þess að sjö ríki sendu herskip til að halda Hormuz-sundi opnu og hefur nefnt Kína, Bretland, Japan, Frakkland og Suður-Kóreu. Ástralía og Japan hafa neitað að senda herafla til Mið-Austurlanda og stjórnvöld í Ástralíu segja raunar enga slíka beiðni hafa borist. Bretar eru hins vegar sagðir vera að skoða hvað þeir geta gert til að aðstoða en embættismenn segja það mögulega aðeins myndu gera illt verra að senda herskip á vettvang. Kona leitar í rústum heimilis síns í Tehran.Getty/Majid Saeedi Trump stendur frammi fyrir nokkuð erfiðum vanda en umferð olíuflutningaskipa um Hormuz-sund liggur niðri vegna hótana Írana um árásir á þá sem sigla um sundið. Þetta hefur valdið því að olíuverð hefur farið hækkandi, sem ógnar meðal annars vinsældum forsetans heima, sem eru takmarkaðar fyrir. Stjórnvöld í Bandaríkjunum lögðu upp í aðgerðirnar gegn Íran án þess að leita til bandamanna eða alþjóðasamfélagsins en virðast ekki geta greitt fyrir umferð um Hormuz-sund án aðstoðar, þrátt fyrir fjálglegar yfirlýsingar um að hernaðarinnviðum Írana hafi svo gott sem verið útrýmt. Trump hafði áður sagst myndu senda herskip til að fylgja skipum um sundið ef til þess kæmi en ekki hefur orðið af því, að minnsta kosti enn sem komið er. Íranir hafa haldið áfram árásum á skotmörk í nágrannaríkjunum og þá hafa stjórnvöld í Ísrael sagt að það séu enn þúsundir skotmarka fyrir þá til að ráðast gegn í Íran.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran NATO Hernaður Donald Trump Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Rússnesk stýriflaug farið inn í Pólland Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Sjá meira