Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. mars 2026 14:01 Atli Sigurjónsson er búinn að skora sjö af fjórtán mörkum Þórsliðsins í Lengjubikarnum. Þór Akureyri - Fótbolti Gamli KR-ingurinn og núverandi Þórsari, Atli Sigurjónsson, fór afar illa með Valsmenn í Lengjubikarnum í Boganum á Akureyri í gærkvöldi.
Þórsarar, sem eru nýliðar í Bestu deildinni í sumar, unnu 5-1 sigur á Val og skoraði Atli öll fimm mörkin. Þórsarar eru nýkomnir heim úr æfingarferð á Spáni og sú ferð fór greinilega afar vel í norðanmenn. Þórsliðið er taplaust á toppi riðilsins með tíu stig í húsi af tólf mögulegum og markatöluna 14-3. Atli er kominn með sjö af þessum fjórtán mörkum eða helming marka liðsins. Kristján Oddur Kristjánsson hafði komið Val yfir með skallamarki á 15. mínútu leiksins en þá var komið að þætti Atla. Atli jafnaði metin á 28. mínútu þegar hann var á undan Stefáni Þór Ágústssyni, markverði Vals, í boltann. Þórsarar tóku á móti Val í kvöld í hreinum úrslitaleik um efsta sæti Riðils 2 í A deild Lengjubikars karla. Atli Sigurjónsson hélt veislu og honum var einum boðið. 5 mörk. Takk! pic.twitter.com/Oo1lZFkutO— Livey (@liveyevents) March 10, 2026 Atli kom síðan Þór yfir tveimur mínútum fyrir hálfleik þegar hann komst inn í sendingu varnarmanns Vals og lyfti honum yfir Stefán í markinu langt fyrir utan teig. Atli skoraði síðan þrjú mörk í seinni hálfleiknum, fyrst með skoti úr teig eftir laglega sókn á 64. mínútu og svo á 67. mínútu með skoti fyrir utan teig. Hann skoraði síðan fimmta markið á 79. mínútu af mjög stuttu færi á fjærstönginni eftir fyrirgjöf. Hér fyrir neðan má sjá þessi fimm mörk Atla en Livey var með leikinn í beinni hjá sér og klipptu saman það helsta úr leiknum. View this post on Instagram A post shared by Þór Akureyri (@thor_fotbolti)
Besta deild karla Þór Akureyri Valur Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira