„Hvað er hann að gera hér?“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 11:00 Bjarni Guðjón Brynjólfsson er kominn heim í Þór og sumir verðandi liðsfélagar hans trúðu ekki hvað þeir sáu á æfingu. @thor_fotbolti Nýliðar Þórsara í Bestu deildinni náðu sér í aðeins meiri reynslu úr úrvalsdeildinni og endurheimtu um leið einn af sonum félagsins sem hafði verið í ævintýrum fyrir sunnan.
Knattspyrnudeild Þórs og knattspyrnudeild FH hafa komist að samkomulagi um að Bjarni Guðjón Brynjólfsson snúi aftur í Þorpið á lánssamningi frá Hafnafjarðarliðinu á komandi tímabili. Þórsarar fóru skemmtilega leið til að kynna félagsskiptin á samfélagsmiðlum sínum. Liðið er statt út í æfingaferð á Spáni og þar má sjá tvo leikmenn liðsins rekast allt í einu á Bjarna Guðjón þeim að óvörum. Þeir trúa ekki sínum eigin augum og spyrja: „Hvað er hann að gera hér?“ Bjarni er með þessu að snúa aftur heim í Þorpið eftir að hafa verið seldur frá Þór til Vals haustið 2023. Bjarni staldraði stutt við hjá Val og gekk til liðs við FH um mitt sumar 2024. Þar hefur Bjarni leikið 28 leiki með FH í efstu deild og skorað tvö mörk. Þetta gerist líka á tímamótum hjá kappanum. Bjarni fagnaði 22 ára afmæli sínu um helgina og nýtti afmælisdaginn í að ferðast til móts við Þórsliðið sem dvelur nú við æfingar á Marbella á Spáni. Bjarni hefur leikið 68 leiki fyrir Þór í deild og bikar og skorað í þeim 17 mörk en alls hefur Bjarni leikið 97 leiki í meistaraflokki. Þá hefur Bjarni leikið 14 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað eitt mark. Bjarni var kjörinn íþróttamaður Þórs árið 2022 en það sumar skoraði hann sex mörk í nítján leikjum í Lengjudeildinni aðeins átján ára gamall. Nú fær hann að upplifa það þegar uppeldisfélagið hans spilar í efstu deild í fyrsta sinn síðan 2014 eða frá því þegar hann var tíu ára gamall í yngri flokkum félagsins. View this post on Instagram A post shared by Þór Akureyri (@thor_fotbolti)
Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira