„Ætluðum við að gera þetta núna?“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 20:02 Ferfætlingur á ferð í snjónum í fylgd með eiganda sínum á tveimur jafnfljótum. Vísir/Vilhelm Vetrarfærð er víða á vestanverðu landinu vegna snjókomu og gular viðvaranir voru gefnar út í dag vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, og á Vestfjörðum og við Breiðafjörð sem taka gildi á morgun. Snjóinn tók að kyngja niður á höfuðborgarsvæðinu rétt um klukkan tvö í dag og var gul veðurviðvörun gefin út nær samstundis og veðrið skall á þar sem óljóst var framanaf hvar nákvæmlega úrkomubakkinn myndi ná landi.
Það er ekki á hverju ári sem það þykja tíðindi að það snjói í febrúar á Íslandi, en þetta er hins vegar í fyrsta sinn síðan í lok október sem sjóað hefur svo hressilega á höfuðborgarsvæðinu. Alhvíta daga sem verið hafa á höfuðborgarsvæðinu síðan má telja á fingrum annarrar handar, en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var einn snjódagur í nóvember, tveir í desember og tveir í janúar. Í öll skiptin var þó um að ræða töluvert minni snjó en féll í dag, og í október þegar snjókomumet í mánuðinum var slegið. Þeir allra hörðustu létu ekki smá snjókomu á sig fá og fóru leiðar sinnar á reiðhjóli.Vísir/Vilhelm Það var allur gangur á því hvort fólk sem fréttastofa ræddi við í dag var tilbúið fyrir snjókomuna þegar hún skall á í höfuðborginni síðdegis, líkt og heyra má í fréttinni hér að neðan. Lóló Rósenkrans er ein þeirra sem var ekki beint tilbúin í snjókomuna, en lætur snjóinn þó ekki á sig fá. „Stóð þetta eitthvað til? Ætluðum við að gera þetta núna? Nei, ég var ekki að bíða eftir honum,“ segir Lóló létt í bragði. „En það er ekkert að þessu, yndislegt veður.“ Gul viðvörun var í gildi til klukkan sjö í kvöld á höfuðborgarsvæðinu en snjókomubakkinn hefur síðan fært sig vestur eftir landinu og tekur gul viðvörun gildi á Vestfjörðum snemma í fyrramálið og rétt fyrir hádegi á norðanverðu Snæfellsnesi og annars staðar við Breiðafjörð. Vegfarendur eru hvattir til að hafa varann á og kynna sér veður og færð áður en lagt er af stað, einkum þeir sem eiga leið um fjallvegi á vestanverðu landinu, þar sem hálka, skafrenningur og þæfingsfærð gæti sett strik í reikninginn.
Veður Reykjavík Mest lesið Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Veður Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðarviðræður“ Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Innlent Fleiri fréttir Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Tína rusl til að komast á Reyki Trausti vill snúa aftur „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Rúta lenti utan vegar Ráðaleysi, viðvörun og hetjusaga Yrði glaður að fá Ísland í ESB: Atkvæðagreiðsla á næstu mánuðum Fékk Prins Póló: „Pabbi þetta er fyrir þig“ Enginn meðalmaður eða meðalkona til í alvörunni Maðurinn grunaður um manndráp á Kársnesi áfram í haldi Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Yfir hundrað þúsund gert kröfu: „Réttlæti skal ná fram að ganga“ Þá var hægt að lækka fargjöld um 51 prósent Tæp sextíu prósent landsmanna vilja banna sjókvíaeldi Sjálfstæðisflokkurinn ekki í samkeppni og „alveg slök“ í Miðflokknum Einar fundar með borginni um málefni miðborgar Átti að fá smáaura fyrir sögulegt smygl Þjónustubátur sökk í Tálknafjarðarhöfn Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Enn óvíst hvar miðja bakkans lendir Snjókomubakkinn nálgast borgina Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skólakerfinu Ellefu í framboði í prófkjöri Pírata Býður sig fram í embætti varaformanns VG Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórnmálaflokka Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu Sjá meira