Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs Sunna Sæmundsdóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 25. febrúar 2026 15:17 Fólk er hvatt til að fara fyrr heim til að létta á síðdegisumferðinni. Vísir/Vilhelm Ofankoma er mikil þessa stundina á höfuðborgarsvæðinu og þau sem hafa tök á því eru hvött til að fara fyrr heim úr vinnu. Gul veðurviðvörun er í gildi og töluverðar seinkanir eru á strætó.
Ofankoman er mikil þessa stundina og samkvæmt Veðurstofunni er reiknað með að hún verði enn meiri þegar líður á daginn. Þau sem hafa tök á því að fara fyrr heim úr vinnu eru því hvött til þess að skoða það til þess að létta á síðdegisumferðinni. Viðvörunin var gefin út rétt fyrir klukkan tvö og tók þá þegar gildi en óvissan var mikil um hvar snjókoman yrði mest. „Við reiknuðum með að þetta færi aðeins norðar og fram hjá borginni en svo sáum við allt í einu á radarnum að þetta væri bara að stefna beint á borgina. Þá má reikna með að það geti alveg bætt talsvert í snjókomuna í dag og það gætu orðið umferðarvandræði,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann biðlar til ökumanna að fara varlega, sérstaklega þá sem ætla að fara á milli landshluta á Vesturlandi í kvöld. „Kanna vel aðstæður áður en lagt er af stað og sömuleiðis mega þeir sem eru inni í höfuðborginni reyna að flýta heimferð ef mögulegt er, reyna að forðast umferðateppur og reyna að vera ekki meira á ferðinni en nauðsyn krefur.“ Tölverðar seinkanir eru hjá Strætó vegna snjókomunnar og eru farþegar beðnir um að sýna þolinmæði.
Reykjavík Veður Umferð Færð á vegum Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Sjá meira