Hálfs árs fangelsi fyrir að berja mann með bifhjólakeðju Kjartan Kjartansson skrifar 25. febrúar 2026 09:25 Fórnarlambið hélt því fram að árásarmaðurinn hefði notað mórtorhjólakeðju. Lögreglumenn rannsökuðu þó ekki íbuðina eða leituðu að keðju. Vísir/Getty Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi karlmann með langan sakaferil að baki í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, fyrir líkamsárás þegar hann sló mann í höfuðið með mótorhjólakeðju. Tekið var tillit til viðsnúnings á högum árásarmannsins þegar refsingin var ákveðin.
Árásin átti sér stað í heimahúsi í Reykjavík 11. febrúar árið 2024. Fórnarlambið hlaut skurð á hvirfli og vægan heilahristing auk áverka á framhandlegg samkvæmt ákæru í málinu. Fórnarlambið lýsti atvikum þannig að árásarmaðurinn hefði reiðst því að hann hefði átt í vingjarnlegu spjalli við kærustu þess síðarnefnda. Báðir menn dvöldu þá í íbúð kunningjakonu fórnarlambsins. Árásarmaðurinn hafi fyrst haft „ljót orð“ við fórnarlambið en síðan slegið það í höfuðið með keðjunni. Í kjölfarið hefði árásarmaðurinn sagt honum að hafa ekki samband við lögreglu og að segjast hafa fallið. Þá hafi hann og kærasta hans haldið síma fórnarlambsins frá því. Leituðu ekki að keðjunni í íbúðinni Í skýrslutökum hjá lögreglu bar árásarmaðurinn því við að hann vissi ekki um hvað málið snerist eða hvernig fórnarlambið hefði hlotið áverkana. Fyrir dómi sagðist hann ekki muna eftir atvikum vegna vímuefnaneyslu. Raunar hefði hann átt við fíknivanda að stríða frá unga aldri og lent í fangelsi átján ára. Hann væri nú fyrst að ná tökum á neyslunni og hefði verið edrú í eitt og hálft ár. Tímabilið væri það lengsta án vímuefna frá barnsaldri. Dómurinn taldi brot mannsins stórvarasamt þar sem hann hefði ráðist að höfði fórnarlambsins. Hins vegar hefðu áverkarnir sem hlutust af árásinni ekki verið það alvarlegir. Með tilliti til þess að hversu rannsókn lögreglu var ábótavant taldi dómurinn ekki rétt að sakfella manninn fyrir stórfellda líkamsárás. Fetti dómurinn meðal annars fingur út í að lögregla hefði ekki leitað í íbúðinni að keðjunni sem árásarmaðurinn átti að hafa beitt. Vísaði til ótrúlegs viðsnúnings Sakaferill árásármannsins nær áratug aftur í tímann. Hann hefur meðal annars verið sakfelldur fyrir fíkniefnabrot, fjársvik, gripdeildir, húsbrot, þjófnað og vopnalagabrot. Dómurinn tók tillit til góðrar hegðunar mannsins á meðan hann dvaldi á Kívabryggju nánast allt síðasta ár og að hann hefði leitað sér meðferðar við vandamálum sínum. Forstöðumaður Batahúss, úrræðis fyrir brotamenn sem hafa lokið afplánun, ritaði dómnum erindi vegna máls mannsins. Fullyrti hann að maðurinn væri hugheill í að yfirstíga erfiðleika sína og gera eitthvað uppbyggilegt við líf sitt. Umbreytingin á honum væri ótrúleg og ekki oft sem ungir menn næðu að breyta högum sínum algjörlega eftir að hafa lent í „svartnætti vímugjafanna“. Því væri rétt að gefa honum tækfiræi til að sýna hvað í honum byggi. Árangurinn sem hann hefði náð gæti glatast ef hann yrði fangelsaður á ný. Auk skilorðsbundna fangelsisdómsins þarf maðurinn að greiða fórnarlambinu 400 þúsund krónur í miskabætur og rúma 1,3 milljónir króna í sakarkostnað.
Dómsmál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira