Höfnuðu boði Trumps eftir grín hans í karlaklefanum Sindri Sverrisson skrifar 24. febrúar 2026 08:04 Bandaríkin fögnuðu vel eftir sigur gegn Kanada í framlengdum úrslitaleik síðasta fimmtudag, í íshokkí kvenna. Getty/Stefano Guidi Bandaríkin eignuðust tvö Ólympíumeistaralið í íshokkí á Ítalíu um helgina. Aðeins karlaliðið ætlar að þiggja boð Donalds Trump Bandaríkjaforseta.
Trump hringdi í karlaliðið þegar það var enn að fagna Ólympíumeistaratitlinum inni í búningsklefa á sunnudaginn, eftir sigur gegn Kanada í framlengdum leik. Þar bauð hann liðinu að vera viðstatt þegar hann flytur árlegt ávarp sitt til þingsins í kvöld, um stöðu ríkjasambandsins (e. The State of the Union). Ljóst er að leikmönnum þótti þetta mikill heiður og þeir tóku vel í boðið í símtalinu. En í símtalinu gaf Trump einnig í skyn að hann neyddist til þess að bjóða kvennalandsliðinu líka. Það varð einnig Ólympíumeistari, með nákvæmlega sama hætti og karlaliðið því það vann Kanada í framlengdum úrslitaleik. „Ég verð að segja ykkur að við verðum að bjóða kvennaliðinu,“ sagði hinn 79 ára gamli Trump og hló. „Þið vitið það. Ég held að ég yrði líklega kærður til embættismissis [ef kvennaliðinu yrði ekki boðið],“ bætti Trump við og áfram var hlegið. You can hear the genuine pride in Donald Trumps voice when he called the Team USA Hockey Team pic.twitter.com/ch6GbXShwh— Harrison Krank (@HarrisonKrank) February 23, 2026 Í yfirlýsingu frá kvennalandsliðinu er hvergi vísað í þetta grín forsetans heldur er boðinu hafnað með afar kurteisum hætti. „Við erum innilega þakklátar fyrir boðið sem gullverðlaunaliði Bandaríkjanna í íshokkí kvenna var sent og kunnum vel að meta viðurkenninguna á einstökum árangri liðsins,“ sagði í yfirlýsingu frá bandaríska kvennaliðinu sem gefin var út í gær. Aerin Frankel og Hannah Bilka verða ekki viðstaddar ræðu forsetans í kvöld.Getty Samkvæmt AP fréttaveitunni fengu landsliðskonurnar, sem unnu sinn titil síðasta fimmtudag, ekki að vita af boðinu fyrr en í fyrrakvöld og áttu þá orðið erfitt með að breyta sínum plönum. Á meðan að karlaliðið ferðaðist í einkaflugi til Miami í gærmorgun fóru konurnar með áætlunarflugi til Atlanta. „Vegna tímasetningar og áður ákveðinna náms- og starfsskuldbindinga í kjölfar leikanna geta íþróttakonurnar ekki tekið þátt. Þeim þótti heiður að vera boðið og eru þakklátar fyrir viðurkenninguna,“ sagði einnig í yfirlýsingu kvennaliðsins.
Íshokkí Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit Fram á toppinn og flautumark á Selfossi FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Haukur leiddi endurkomu Löwen Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Hrútarnir frá Hollywood eiga að fara alla leið Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Öll pressan er á Ólafi Inga „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu Sjá meira