Sport

„Getum gert stór­kost­lega hluti ef við höldum á­fram að vera ein­beittar“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Eva Wium Elíasdóttir skoraði 24 stig í kvöld.
Eva Wium Elíasdóttir skoraði 24 stig í kvöld. vísir/Diego

Stjarnan vann gríðarlega öflugan tuttugu stiga sigur á Keflavík í Blue höllinni í kvöld 72-92 þegar fimmta umferð Bónus deild kvenna hóf göngu sína. Eva Wium Elíasdóttir átti flottan leik fyrir Stjörnuna og ræddi við Vísi eftir leik.

„Ég er ánægð með hvað við vorum sterkar í hausnum í gengum leikinn“ sagði Eva Wium Elíasdóttir leikmaður Stjörnunnar en hún endaði stigahæst á vellinum með 24 stig.

„Það er alltaf erfitt að koma til Keflavíkur og spila hérna þannig ég er mjög stolt af liðinu fyrir að vera svona sterkar“

Leikurinn var jafn framan af en Stjarnan náði að slíta sig frá Keflavík í öðrum leikhluta og byggja upp gott forskot.

„Við fórum að spila agressíva vörn og gerðum það sem við töluðum um fyrir leik“

„Fórum að setja pressu á þær því við vorum að gefa þeim svo opin þriggja stiga skot og þær eru góðar og hitta mjög vel“

Keflavík mætti með krafti út í seinni hálfleikinn en Stjarnan hélt haus og fór að lokum með heldur öruggan sigur.

„Það er ekkert forskot öruggt á móti Keflavík. Maður er bara að bíða þar til dómarinn flautar, þá getur maður aðeins slakað annars má maður aldrei vera slaka á“

Það færðist smá hiti í leikinn í fjórða leikhluta þar sem Eva Wium og María Jónsdóttir í liði Keflavíkur lentu saman sem endaði með því að María hrinti Evu Wium og fékk dæmda á sig óíþróttamannslega villu.

„Bara smá hiti, er það ekki partur af leiknum? Það er bara gaman“

Það er bjart yfir í Garðabænum og framhaldið horfir vel við.

„Ég er mjög spennt fyrir framhaldinu. Við erum efnilegt lið og getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar og æfum vel“ sagði Eva Wium Elíasdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×