Viðskipti innlent

Ólafs­son gin aftur í eigu Ís­lendinga

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Arnar og Hrefna eru spennt fyrir að koma partýinu aftur á stað, eins og það er orðað í tilkynningu.
Arnar og Hrefna eru spennt fyrir að koma partýinu aftur á stað, eins og það er orðað í tilkynningu. Facebook/Ólafsson Gin

Arnar Jón Agnarsson, frömuðurinn á bak við Ólafsson ginið, og Hrefna Sætran, einn fremsti kokkur landsins, hafa fest kaup á Eyland Spirits, félaginu sem framleiðir Ólafsson gin. Félagið hefur verið í eigu erlendra fjárfesta frá árinu 2022. 

Frá þessu er greint á Facebook-síðu Ólafsson gin. Þar segir að Arnar, sem hefur ekki starfað hjá félaginu síðan það gekk kaupum og sölu fyrir fjórum árum, muni jafnframt taka við sem framkvæmdastjóri félagsins á ný.

„Arnar og Hrefna eru spennt fyrir því að koma partýinu aftur af stað og fæst nú Ólafsson aftur í Vínbúðunum eftir að hafa horfið þaðan úr hillum síðasta sumar,“ segir í tilkynningunni. 

Ólafsson ginið hefur farið sigurför síðan það fór fyrst á markað. Sem dæmi má nefna gullverðlaun í keppninni The International Wine and Spirit Competition (IWSC) árið 2020 og gullmedalíu í stærstu gin-blindsmökkun áfengisgeirans sama ár. 

Ólafsson ginið heitir í höfuðið á 18. aldar skáldinu og náttúrufræðingnum Eggerti Ólafssyni og eru íslenskar jurtir og vatn í stórum hlutverkum í drykknum.


Tengdar fréttir

Gullmedalía í stærstu gin blindsmökkun heims

Íslenska ginið Ólafsson gin fékk gullmedalíu í stærstu gin-blindsmökkun áfengisgeirans sem sagt er frá í nýjasta tölublaði fagmiðilsins Spirits Business.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×