Byggjum fyrir fólk en ekki fjárfesta Finnur Ricart Andrason skrifar 17. febrúar 2026 07:31 Við þurfum að byggja meira ódýrt, óhagnaðardrifið og félagslegt húsnæði þar sem græn svæði, ljósvist og góðar tengingar við öflugar almenningssamgöngur ráða för. Á undanförnum árum hefur uppbygging húsnæðis í Reykjavík verið of mikið á forsendum markaðarins, á forsendum fjárfesta sem hafa það meginmarkmið að græða. Þetta hefur of víða leitt til einsleitni, of mikils þéttleika, lélegra birtuskilyrða og rýrnun grænna svæða. Við þurfum að snúa þessari þróun við og byggja fyrir fólk. Ódýrara húsnæði Húsnæðis- og leiguverð er í hæstu hæðum og hundruð íbúða á höfuðborgarsvæðinu seljast ekki af því þær eru of dýrar eða uppfylla ekki þarfir fólks. Brestirnir eru víða og það er augljóst að markaðurinn er ekki að standa sig. Þá er það skylda borgarinnar að stíga inn í til að tryggja ódýrara húsnæði fyrir Reykvíkinga. Í fyrsta lagi þurfum við að styrkja Félagsbústaði, óhagnaðardrifið leigufélag í eigu borgarinnar sem gegnir mikilvægu hlutverki í að tryggja húsnæði fyrir efnaminni borgarbúa, eldri borgara og fatlað fólk. Mikilvægt er að Félagsbústaðir eignist fleiri íbúðir til að borgin geti aukið framboð af ódýrum leiguíbúðum og gert þær aðgengilegar fyrir breiðari hóp fólks. Í öðru lagi þurfum við að lækka gjaldið sem er tekið fyrir byggingarrétt. Þessi gjöld hafa hækkað mikið í gegn um tíðina í takt við markaðsvæðingu byggingarlóða og hefur þetta einungis skilað sér í hærra húsnæðisverði og mörgum milljónum í lántökukostnað fyrir launafólk. Með því að lækka þetta gjald getum við lækkað húsnæðisverð með skjótum hætti. Samhliða þessu þarf að fjölga byggingarhæfum lóðum í samræmi við gildandi kjarasamninga. Í þriðja lagi þarf borgin að fara í stórt átak í að byggja óhagnaðardrifnar íbúðir sjálf til að selja. Við þurfum að þora að ganga lengra ef við viljum tryggja ódýrt húsnæði á stærri skala fyrir Reykvíkinga. Með því að byggja sjálf getur borgin byggt ódýrara og selt Reykvíkingum beint án þess að smyrja mörgum milljónum ofan á byggingarkostnaðinn í hagnaðarskyni. Til að læra af þeim bestu skulum við horfa til Vínarborgar, Hollands og Danmerkur þar sem hefur tekist vel að bjóða upp á ódýrt, óhagnaðardrifið og félagslegt húsnæði fyrir stóran hluta almennings. Það að tryggja ódýrt húsnæði fyrir borgarbúa er besta leiðin til að auka kjör og lífsgæði fólks. Aukin gæði húsnæðis Til viðbótar við að byggja meira ódýrt og félagslegt húsnæði þarf borgin að tryggja fjölbreytta byggð þar sem ljósvist, hljóðvist, aðgengi að grænum svæðum, skólum, almenningssamgöngum og annarri þjónustu ráða för. Samhliða áframhaldandi þéttingu þurfum við að passa að gæðum sé ekki fórnað. Við þurfum að fá umhverfissálfræðinga með okkur í lið til að húsnæðisuppbyggingin framundan ýti undir vellíðan borgarbúa frekar en að auka vanlíðan. Við eigum ekki að sætta okkur við að uppfylla aðeins lágmarkskröfur heldur á borgin að að gera betur og skrúfa upp metnaðinn þegar kemur að því að auka gæði húsnæðis og bæta þar með líðan Reykvíkinga. Við þurfum að þora að hugsa stórt, láta okkur dreyma og byggja grænna, betra og ódýrara húsnæði fyrir fólkið í borginni. Höfundur sækist eftir 1. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Húsnæðismál Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Finnur Ricart Andrason Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar