Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Árni Sæberg skrifar 6. febrúar 2026 15:46 Valhöll var reist árið 1975 og hefur alla tíð hýst Sjálfstæðisflokkinn. Vísir/Einar Alva fasteignir, félag Skorra Rafns Rafnssonar, er langt komið með að ná samningum við Sjálfstæðisflokkinn um kaup á Valhöll. Enn á þó eftir að ganga frá lausum endum á borð við undirritun kaupsamnings. Skipulagsfulltrúi hefur tekið jákvætt í fyrirspurn Alva fasteigna um hótelrekstur í húsinu.
Þetta staðfesta bæði Skorri Rafn og Tryggvi Másson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Vísi. Þeir vildu að svo stöddu ekki tjá sig frekar um málið. Skipulagsfulltrúi útilokaði nýja hæð en ekki hótelrekstur Þann 16. desember síðastliðinn tók skipulagsfulltrúi Reykjavíkur fyrirspurn Alva fasteigna um Valhöll til afgreiðslu. Alva fasteignir óskuðu eftir afstöðu skipulagsfulltrúa til þess hvort mögulegt væri að fá leyfi til að breyta notkun hússins í gistiheimili eða hótel, koma fyrir matsal í kjallara þess og að bæta við einni inndreginni hæð ofan á húsið. Niðurstaða skipulagsfulltrúa var að taka neikvætt í fyrirspurn um hækkun hússins en að hótelstarfsemi á lóðinni samræmdist aðalskipulagi. Þó þyrfti að breyta deiliskipulagi til að breyta nýtingu byggingarinnar í hótel. Byggð sérstaklega fyrir flokkinn Valhöll var byggð sérstaklega undir starfsemi Sjálfstæðisflokksins árið 1975 en þar hefur ýmis önnur starfsemi einnig verið rekin. Í umsögn skipulagsfulltrúa segir að varðveislugildi Valhallar sé ótvírætt. Í ritinu Byggðakönnun: Borgarhluti 3 – Hlíðar: I. hluti: Saga byggðar í borgarhlutanum: Fornleifaskráning og varðveislumat fornleifa og yngri minja: Niðurstöður varðveislumats húsa og hverfisheilda segi eftirfarandi: Skorri Rafn Rafnsson er stofnandi og forstjóri Alva capital. Alva capital „Reist 1975 og hönnuð af arkitektunum Halldóri H. Jónssyni og Garðari Halldórssyni. Byggingin er merk fyrir þær sakir að hún er eina byggingin sem var sérhönnuð til að hýsa höfuðstöðvar stjórnmálaflokks og hefur ótvírætt verndargildi sem slík. Borgarsögusafn bendir á að byggingin var hönnuð til að setja svip á umhverfið. Enn fremur segir þar að „útlit hússins og staðsetning endurspeglar hlutverk þess. Hefur hátt varðveislugildi, einkum sem áberandi kennileiti á hornlóð og táknræn bygging. Þarf umhverfislegt andrými sem slíkt.“ Umsvifamikill athafnamaður Skorri Rafn Rafnsson er stofnandi og forstjóri Alva capital, sem er móðurfélag Alva fasteigna. Hann hefur stofnað og leitt fjölda fyrirtækja, meðal annars Inkasso, Netgiro, Moberg, Heimkaup, Hópkaup og Bland, og gegnt bæði stöðum forstjóra og stjórnarformanns, að því er segir á vef Alva capital. Hann hefur í gegnum tíðina einnig átt nefmiðla á borð við hun.is, sport.is og 433.is. Þá var hann einn af stofnendum smálánafyrirtækisins Hraðpeninga. Í október síðastliðnum var greint frá því að félag hans Alva capital hefði samið við alþjóðlega hótelkeðju um rekstur hótels í húsnæði félagsins að Rauðarárstíg 27, þar sem utanríkisráðuneytið var áður til húsa.
Fasteignamarkaður Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira