Vitatorg og vörnin fyrir grunnþjónustu Reykjavíkurborgar Helgi Áss Grétarsson skrifar 3. febrúar 2026 12:03 Rekstur framleiðslueldhússins að Vitatorgi hefur verið hluti af grunnþjónustu Reykjavíkurborgar, meðal annars við eldra fólk. Um viðkvæma starfsemi er að ræða en á Vitatorgi hafa verið framleiddar meira en 900 máltíðir á degi hverjum. Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi hefur núna verið lokað en í kjölfar sýnatöku síðastliðinn föstudag fannst bakterían Listeria monocytogenes í eldhúsinu. Kemur þetta eins og þruma úr heiðskíru lofti? Á fundum velferðarráðs Reykjavíkur, bæði í júní 2025 og í desember 2025, var fjallað um málefni framleiðslueldhússins á Vitatorgi (sjá málsnúmer VEL25060025 og VEL25110084). Umfjöllunin á þessum fundum er bundin trúnaði en í lok janúar tók borgarráð ákvörðun í málefnum framleiðslueldhússins og við það tækifæri voru gögn gerð opinber sem varpa ljósi á sögu og ástand framleiðslueldhússins (sjá málsnúmer VEL26010035). Fram kemur í hinum birtu gögnum að allar götur síðan í febrúar 2025 hafi Heilbrigðiseftirlitið metið stöðu framleiðslueldhússins á Vitatorgi alvarlega og að ástand húsnæðisins væri óviðunandi. Eigi að síður veitti Heilbrigðiseftirlitið framleiðslueldhúsinu tvívegis tímabundin starfsleyfi, það yngra var í gildi til 27. maí 2026. Þrátt fyrir góðan vilja, til að láta starfsemi framleiðslueldhússins á Vitatorgi virka tímabundið til lok maí, þá kemur sú útkoma ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti að loka hafi þurft eldhúsinu vegna heilsufarsáhættu. Hin pólitíska forgangsröðun og borgarstjórnarkosningarnar Starfsfólk velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hefur án efa gert sitt besta til að leysa úr þeirri þröngu stöðu sem starfsemi framleiðslueldhússins hefur staðið frammi fyrir undanfarið ár. Sem dæmi var á seinni helmingi ársins 2025 búið að finna heppilegt leiguhúsnæði fyrir þessa mikilvægu starfsemi. Hins vegar var hætt við að taka húsnæðið á leigu vegna þess að það var „of dýrt“. Þetta atriði, að leysa ekki strax úr óviðunandi húsnæðisvanda framleiðslueldhússins, vegna of hárrar leigu, sýnir mat á pólitískri forgangsröðun sem ég er ósammála. Sem sagt, á sama tíma og fjárfest er í gæluverkefnum á borð við torgagerð og þróunar hugmyndafræði á sviði jafnréttismála, er ekki til fjármagn til að verja grunnþjónustu borgarinnar á borð við þá að tryggja heilsunæmt umhverfi fyrir framleiðslueldhús sem útbýr matvæli fyrir viðkvæma hópa á borð við eldra fólk. Þessari forgangsröðun þarf að breyta í kjölfar borgarstjórnarkosninganna 16. maí næstkomandi. Höfundur er fyrsta varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur og er félagi í Miðflokknum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helgi Áss Grétarsson Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Miðflokkurinn Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Rekstur framleiðslueldhússins að Vitatorgi hefur verið hluti af grunnþjónustu Reykjavíkurborgar, meðal annars við eldra fólk. Um viðkvæma starfsemi er að ræða en á Vitatorgi hafa verið framleiddar meira en 900 máltíðir á degi hverjum. Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi hefur núna verið lokað en í kjölfar sýnatöku síðastliðinn föstudag fannst bakterían Listeria monocytogenes í eldhúsinu. Kemur þetta eins og þruma úr heiðskíru lofti? Á fundum velferðarráðs Reykjavíkur, bæði í júní 2025 og í desember 2025, var fjallað um málefni framleiðslueldhússins á Vitatorgi (sjá málsnúmer VEL25060025 og VEL25110084). Umfjöllunin á þessum fundum er bundin trúnaði en í lok janúar tók borgarráð ákvörðun í málefnum framleiðslueldhússins og við það tækifæri voru gögn gerð opinber sem varpa ljósi á sögu og ástand framleiðslueldhússins (sjá málsnúmer VEL26010035). Fram kemur í hinum birtu gögnum að allar götur síðan í febrúar 2025 hafi Heilbrigðiseftirlitið metið stöðu framleiðslueldhússins á Vitatorgi alvarlega og að ástand húsnæðisins væri óviðunandi. Eigi að síður veitti Heilbrigðiseftirlitið framleiðslueldhúsinu tvívegis tímabundin starfsleyfi, það yngra var í gildi til 27. maí 2026. Þrátt fyrir góðan vilja, til að láta starfsemi framleiðslueldhússins á Vitatorgi virka tímabundið til lok maí, þá kemur sú útkoma ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti að loka hafi þurft eldhúsinu vegna heilsufarsáhættu. Hin pólitíska forgangsröðun og borgarstjórnarkosningarnar Starfsfólk velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hefur án efa gert sitt besta til að leysa úr þeirri þröngu stöðu sem starfsemi framleiðslueldhússins hefur staðið frammi fyrir undanfarið ár. Sem dæmi var á seinni helmingi ársins 2025 búið að finna heppilegt leiguhúsnæði fyrir þessa mikilvægu starfsemi. Hins vegar var hætt við að taka húsnæðið á leigu vegna þess að það var „of dýrt“. Þetta atriði, að leysa ekki strax úr óviðunandi húsnæðisvanda framleiðslueldhússins, vegna of hárrar leigu, sýnir mat á pólitískri forgangsröðun sem ég er ósammála. Sem sagt, á sama tíma og fjárfest er í gæluverkefnum á borð við torgagerð og þróunar hugmyndafræði á sviði jafnréttismála, er ekki til fjármagn til að verja grunnþjónustu borgarinnar á borð við þá að tryggja heilsunæmt umhverfi fyrir framleiðslueldhús sem útbýr matvæli fyrir viðkvæma hópa á borð við eldra fólk. Þessari forgangsröðun þarf að breyta í kjölfar borgarstjórnarkosninganna 16. maí næstkomandi. Höfundur er fyrsta varaborgarfulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur og er félagi í Miðflokknum.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar