Veitir ekki viðtöl að sinni Bjarki Sigurðsson skrifar 26. janúar 2026 17:49 Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri laut í læra haldi gegn Pétri Marteinssyni í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Vísir/Lýður Valberg Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri mun ekki veita viðtöl um úrslit prófkjörs Samfylkingarinnar í dag. Enn er óvíst hvort hún þiggi annað sætið á lista flokksins í vor.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri galt afhroð í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Heiða sóttist eftir oddvitasætinu, líkt og Pétur Marteinsson, og hlaut 1424 atkvæði gegn 3063 atkvæðum Péturs. Slökkt á símanum Stærðfræðingurinn Einar Steingrímsson tók saman hversu mörg atkvæði hver frambjóðandi fékk í hvaða sæti. Þar sést að Heiða fékk einungis fimmtán fleiri atkvæði í fyrsta og annað sætið en Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, sem hlaut þriðja sætið. Steinunn kemur ný inn á lista flokksins. Slökkt hefur verið á farsíma borgarstjóra í dag og segir Róbert Marshall, aðstoðarmaður hennar, að hún muni ekki veita nein viðtöl að svo stöddu. Hægt verði að reyna aftur á morgun. Óvíst hvað gerist Engar upplýsingar hafa fengist um hvort hún þiggi annað sætið á listanum. Hún hefur drjúgan tíma til að ákveða sig en uppstillingarnefnd þarf að skila af sér listanum 28. febrúar, eftir rúman mánuð. Taki Heiða ekki sæti á listanum færast þau fjögur sem lentu í sætum þrjú til sex upp um eitt sæti. Óvíst er þó hver muni skipa sjötta sætið. Guðmundur Ingi Þóroddsson endaði sjöundi í prófkjörinu en samkvæmt reglum Samfylkingar þyrfti kona að skipa sjötta sætið þar sem ekki má halla á hlut kvenna. Það yrði þá Dóra Björt Guðjónsdóttir sem fengi sætið. Komi til þess að Heiða taki ekki sætið mun uppstillingarnefnd fara yfir lögin og úrskurða hver fái sjötta sætið.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Reykjavík Tengdar fréttir „Margt óráðið í minni framtíð“ Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og áður Pírata, segir margt óráðið um sína framtíð eftir að niðurstöður prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík lágu fyrir um helgina. Dóra sóttist eftir 3.-4. sæti á lista en hafði ekki erindi sem erfiði. Hvort sem hún fái tækifæri til að taka sæti á lista eða ekki segist Dóra ætla að leggja hönd á plóg í kosningabaráttu Samfylkingarinnar í vor og segist styðja nýjan oddvita flokksins. 26. janúar 2026 15:40 „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, segist í sínu lífi hafa þurft að þola verri og harkalegri skelli en að ná ekki settu markmiði í forvali Samfylkingarinnar sem lauk í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti á lista flokksins en endaði í því sjöunda með 1700 atkvæði. 25. janúar 2026 14:16 Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Pétur Marteinsson nýkjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir stærsta verkefni flokksins í komandi kosningum að vinna traust borgarbúa til baka. Hann segir gott gengi í prófkjörinu til marks um að fólk vilji breytingar í borginni. 24. janúar 2026 20:50 Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent Fleiri fréttir Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Sjá meira
„Margt óráðið í minni framtíð“ Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og áður Pírata, segir margt óráðið um sína framtíð eftir að niðurstöður prófkjörs Samfylkingarinnar í Reykjavík lágu fyrir um helgina. Dóra sóttist eftir 3.-4. sæti á lista en hafði ekki erindi sem erfiði. Hvort sem hún fái tækifæri til að taka sæti á lista eða ekki segist Dóra ætla að leggja hönd á plóg í kosningabaráttu Samfylkingarinnar í vor og segist styðja nýjan oddvita flokksins. 26. janúar 2026 15:40
„Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, segist í sínu lífi hafa þurft að þola verri og harkalegri skelli en að ná ekki settu markmiði í forvali Samfylkingarinnar sem lauk í gær. Hann sóttist eftir þriðja sæti á lista flokksins en endaði í því sjöunda með 1700 atkvæði. 25. janúar 2026 14:16
Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Pétur Marteinsson nýkjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir stærsta verkefni flokksins í komandi kosningum að vinna traust borgarbúa til baka. Hann segir gott gengi í prófkjörinu til marks um að fólk vilji breytingar í borginni. 24. janúar 2026 20:50