Innlent

Fólk láti reyna á hús­ráð áður en það leiti á yfir­fulla Læknavakt

Freyja Þórisdóttir skrifar
Sigríður Dóra Magnúsdóttir er forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en hún segir pestir sem þessar vera þess eðlis að það geti verið betra að reyna öll húsráð áður en leitað er annað.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir er forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en hún segir pestir sem þessar vera þess eðlis að það geti verið betra að reyna öll húsráð áður en leitað er annað. Aðsend/Vísir/Sigurjón

Hið árlega pestatímabil hefur leikið fjölda landsmanna grátt en Læknavaktin tekur á móti hundruðum skjólstæðinga á hverjum degi þessa stundina. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir mikilvægt að fólk láti reyna á öll húsráð, slökun og annað sem því býðst heima fyrir áður en það geri sér ferð á heilsugæslur eða Læknavaktina. Það séu bæði kvef- og magapestir að ganga fólks á milli.

„Það er búið að vera mjög mikil veikindi og kannski óvenju snemma, fyrr á ferðinni heldur en við höfum oft séð,“ segir Stefán Ari Guðmundsson, framkvæmdastjóri Læknavaktarinnar, í samtali við fréttastofu.

Mörg hundruð skjólstæðingar

Síðustu tvær til þrjár vikurnar hafi verið mikil aukning og oft á bilinu fjögur til fimm hundruð manns sem mæti á Læknavaktina dag hvern. Þó geti læknar auðvitað orðið veikir rétt eins og aðrir og því hafi verið erfiðara en oft áður að manna vaktir.

Læknavaktin í Austurveri sinnir vaktþjónustu þar sem aðeins sérfræðingar í heimilislækningum veita læknisþjónustu.Vísir/Vilhelm

„Við erum með sem sagt fyrri og seinni vakt og það vantar í rauninni lækna á báðar vaktir vegna veikinda,“ segir Stefán. Það séu yfirleitt um fimm til sex læknar á hverri vakt.

„En þegar kannski koma svona hópar þá bara er bið. Það eru örugglega hátt í sextíu manns að bíða núna,“ segir hann og bætir við að „tíminn sem tekur að taka hvert og eitt tilfelli getur verið mjög mismunandi og það er ómögulegt að segja þegar fólk er að spyrja: Hvað er biðin löng? Við bara höfum ekki hugmynd um það.“

Flensan skæða sé árleg og geisi upp um þetta leyti, enda sé fólk að hittast í skólum og vinnu eftir sumarfrí og meiri samvera þýði meiri líkur á smiti.

„Það er viðbótarmönnun þegar svona kúfur er kominn og við bætum inn vaktalínum en við náum ekki að manna allt af því að það eru veikindi,“ segir hann en Læknavaktin er opin frá 9:00 til 22:00 um helgar og 17:00 til 22:00 virka daga.

Mikill hasar víða

Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir sömu sögu og Stefán: það sé rosalega mikið að gera á heilsugæslunum.

„Þannig að það er um að gera að fólk rjúki ekki af stað, til dæmis á Læknavaktina, heldur lesi sér til og hafi samband við 1700 og svona noti það rétt því það er bara kominn mjög mikill hasar og náttúrulega pest víða,“ segir hún og bætir við að það séu nokkrar pestir í umferð.

Kvefpestir og magakveisur séu margar hverjar þannig að besta ráðið sé að vera einfaldlega heima hjá sér í rólegheitum.

„Það eru fleiri en ein pest í gangi þannig að mest svona ýmsar útgáfur af kvefpest en það er líka magapest og ég hef líka heyrt um hand-, fót- og munnsjúkdóm þannig að það er alls konar í gangi,“ segir hún en hún hafi ekki heyrt af fleiri Nóróveirusmitum en þessu eina á skrifstofu Reykjavíkurborgar í vikunni.

Annars sé lykilatriði þegar pestatímabilið leiki landsmenn grátt að reyna fyrst á öll húsráð áður en haldið sé á heilsugæslurnar eða Læknavaktina.

„Ég myndi ráðleggja fólki að anda bara rólega og láta reyna á þessi húsráð sem eru, þau gera gagn og sýklalyf eru ekki notuð í þessum tilvikum,“ segir hún og ítrekar „ég mæli bara með tei og panodil og slökun.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×