Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. janúar 2026 16:33 Lauganestanginn sem nú hefur verið friðlýstur. Reykjavíkurborg Menningar- og búsetulandslag Laugarnestanga í Reykjavík hefur verið friðlýst á grundvelli laga um menningarminjar. Friðlýsingunni var fagnað með ráðherra og borgarstjóra í dag.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, staðfesti friðlýsinguna en markmiðið með henni er að sameina merkar minjar á Laugarnesi sem minjaheild, en minjarnar sýna þróun svæðisins allt frá landnámi til dagsins í dag. Eldri friðlýsingar náðu aðeins til hluta þeirra fjölmörgu fornleifa sem eru á svæðinu. Friðlýsingin nær til búsetu- og menningarlandslags, þ.e. ásýndar staðarins og búsetumynsturs, búsetuminja, bæjarhóls, kirkjugarðs, beðasléttna, vara, annarra fornleifa og herminja. Hér má sjá friðlýstu svæðin.Reykjavíkurborg Hér má sjá friðlýstu svæðin.Reykjavíkurborg „Með friðlýsingunni eru stigin mikilvæg skref í átt að vernd menningarminja sem fyrir eru á svæðinu og þeirra sem seinna meir kunna að koma í ljós. Svæðið er einnig mikilvægt útivistarsvæði og þar er að finna einu óröskuðu fjöruna sem eftir er á norðurströnd Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu Reykjavíkurborgar. Friðlýsingin var gerð að tillögu Minjastofnunar Íslands sem vann hana í samráði við Reykjavíkurborg, eiganda landsins. Í rökstuðningi fyrir friðlýsingunni kemur fram að á Laugarnestanga megi sjá áhrif mannsins á umhverfi sitt allt frá upphafi byggðar í Reykjavík fram á okkar daga. Menningarlandslag Laugarnestanga er mikilvægur hluti af sögu Reykjavíkur og eitt fárra svæða innan marka þéttbýlis Reykjavíkurborgar þar sem hægt er að upplifa svo heildstætt menningarlandslag. Á yfirborði eru sýnilegar minjar frá ólíkum tímabilum í sögu Íslands. En þar má m.a. sjá leifar kirkjugarðs, bæjarhóls og beðasléttna auk minja um hjáleigubúskap og sjósókn í Norður- og Suðurkoti. Einnig eru þar leifar embættisbústaðar biskups, holdsveikraspítala og stríðsminja. Frá vinstri: Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Þuríður Sigurðardóttir f.h. Laugarnesvina, Birgitta Spur fh. Listasafns Sigurjón Ólafssonar, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur.Reykjavíkurborg Friðlýsingunni fylgja ýmsar undanþágur, t.a.m. eru öll hús innan svæðisins, lausafé á lóðum, sem og öll veitumannvirki neðanjarðar undanskilin skilmálum friðlýsingarinnar. Ekki er gert ráð fyrir 100 metra friðhelguðu svæði umhverfis hið friðlýsta svæði og jafnframt fellur úr gildi núgildandi 100 metra friðhelgun bæjarhóls Laugarness og hins gamla kirkjugarðs. „Með friðlýsingunni klárum við dæmið. Við tryggjum vernd menningarminja og búsetulandslags Laugarnestanga til framtíðar. Svona sýnum við að í nútímaborg er hægt að sameina vernd, aðgengi og lífsgæði. Sýnum að náttúru- og menningarvernd snýst ekki um að haka í box – heldur um að taka ábyrgð, sýna virðingu og varðveita sameiginleg gæði til framtíðar. Með því að friðlýsa þetta svæði sýnum við í verki virðingu fyrir sögunni okkar, fólkinu sem hér lifði og starfaði, þetta er menningararfur sem okkur þykir vænt um, og sem við sem stýrum landi og borg erum einhuga um að varðveita,“ segir Jóhann Páll Jóhansson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Frá athöfninni í dag.Reykjavíkurborg „Og svo það sé skýrt: með friðun erum við ekki einhvern veginn að læsa svæðinu. Þvert á móti. Friðlýsing er einmitt stjórntæki sem stuðlar að því að komandi kynslóðir hafi samskonar aðgengi að menningarminjum og við, og að reynt sé eftir föngum að varðveita þær í eigin umhverfi og viðhalda ástandi þeirra.“ Rúnar Leifsson, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands, fagnar tíðindunum. „Laugarnesið er þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga trausta vini. Íbúar og aðrir velunnarar þessa svæðis hafa beitt sér fyrir verndun þess um árabil og hvatt mjög til friðlýsingar þeirrar sem raungerist í dag.“
Fornminjar Reykjavík Umhverfismál Menning Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira