Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. janúar 2026 13:58 Ulf Kristersson forsætisráðherra Svíþjóðar og Emmanuel Macron forseti Frakklands eru á meðal þeirra sem gefa yfirlýsinguna út. AP Löndin sem Trump hefur hótað háum tollum gangi þau ekki að óskum hans um að styðja innlimun hans á Grænlandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu. Þau segjast tilbúin til viðræðna en að þeim verði ekki hnikað hvað fullveldi þeirra varðar.
Trump tilkynnti í gær að hann hygðist beita þau ríki sem mest hafa sett sig í móti fyrirætlunum hans um innlimun Grænlands, þau sem gert hafa út herlið til landsins til þátttöku í heræfingunni Arctic Endurance, tíu prósenta allsherjartollum frá og með 1. febrúar. Þeir muni svo hækka og nema 25 prósentum verði Trump ekki látið eftir Grænland fyrir 1. júní. Leiðtogar Evrópu hafa brugðist ókvæða við hótunum Trump sem þeir hafa lýst sem óskiljanlegum tilraunum til fjárkúgunar. Danir, Finnar, Frakkar, Þjóðverjar, Hollendingar, Norðmenn, Svíar og Bretar gáfu út yfirlýsingu í dag. Þau eru löndin sem Trump hótaði tollum í gærkvöld. „Sem aðildarþjóðir að Atlantshafsbandalaginu erum við staðráðnar í því að styrkja varnir norðurslóða þjóðum beggja vegna Atlantshafsins í hag. Danska heræfingin Arctic Endurance sem bandamenn taka þátt í er svar við þessari þörf. Það steðjar ekki ógn að neinum,“ segir í yfirlýsingunni. „Við stöndum heilshugar með Konungsríkinu Danmörku og grænlensku þjóðinni. Á grundvelli þess ferlis sem í hönd fór í síðustu viku erum við tilbúin til að eiga samræður sem byggjast á virðingu fyrir fullveldi og friðhelgi þjóða sem við stöndum staðföst með. Hótanir um tollalagningu grafa undan samskiptum yfir Atlantshafið og gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás. Við erum staðráðin í að verja fullveldi okkar,“ segir svo.
NATO Evrópusambandið Svíþjóð Frakkland Bretland Danmörk Finnland Holland Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Öryggis- og varnarmál Þýskaland Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira