Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Samúel Karl Ólason skrifar 16. janúar 2026 16:08 Donald Trump virðist ekki sáttur við að hann fái ekki meiri stuðning varðandi mögulega yfirtöku Grænlands. AP/Alex Brandon Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist mögulega ætla að beita ríki þar sem ráðamenn eru ekki fylgjandi ætlunum hans varðandi yfirtöku Grænlands tollum.
Þetta var meðal þess sem Trump sagði á hrinborðsumræðum um fjárfestingar í dreifbýli í Bandaríkjunum í Hvíta húsinu í dag. Hann var að ræða kostnað lyfja og tolla þegar hann sneri sér skyndilega að Grænlandi. „Ég gæti gert það með Grænland líka. Ég gæti beitt ríki sem fylgja ekki með Grænland,“ sagði Trump. „Við þurfum Grænland vegna þjóðaröryggis, svo ég gæti gert það með Grænland." Trump fór ekki nánar út í ætlanir sínar varðandi tolla og Grænland. Forsetinn hefur ítrekað á undanförnum árum haldið því fram að Bandaríkin þurfi að eignast Grænland vegna þjóðaröryggis. Hann hefur meðal annars sagt landið mikilvægt fyrir eldflaugavarnir Bandaríkjanna og Trump-liðar hafa einnig talað um að koma höndum yfir auðlindir sem finna má þar, eins og sjaldgæfa málma. Utanríkisráðherra Danmerkur og Grænlands héldu í vikunni til Washington DC, þar sem þau funduðu með utanríkisráðherra og varaforseta Bandaríkjanna. Ráðamenn ríkjanna eru ekki sammála um hvaða niðurstöðum komist var að á fundinum. Trump hefur verið sagt að Bandaríkin þurfa ekki að eignast Grænland til að bæta varnir Bandaríkjanna. Bæði löndin eru aðilar að Atlantshafsbandalaginu og þar að auki er Bandaríkjamönnum heimilt að fjölga hermönnum, hergögnum og herstöðvum á Grænlandi. Í nýlegu viðtali við blaðamenn New York Times var Trump bent á að samkvæmt gömlum sáttmála frá 1951 við Grænlendinga og Dani mættu Bandaríkjamenn auka viðveru sína á Grænlandi, án þess að þurfa að eignast eyjuna. Hann sagði það ekki skipta máli. Eignarhald skipti miklu máli. Þegar hann var spurður af hverju svo væri sagði Trump: „Af því að það finnst mér þurfa sálfræðilega til að ná árangri. Ég held að eignarhald gefi þér hluti sem leiga eða samningur gerir ekki. Eignarhald gefur þér hluti sem þú getur ekki fengið með því að skrifa eingöngu undir skjal.“ Umfangsmiklir tollar sem Trump hefur beitt svo gott sem öll ríki heims hafa leitt til umfangsmikilla málaferla, sem ríkisstjórnin hefur ekki komið vel út hingað til. Trump beitti þeim á grunni laga um neyðarástand frá 1977. Þessum lögum hafði þangað til að mestu verið beitt til að koma á refsiaðgerðum vegna ógna gegn Bandaríkjunum. Áfrýjunardómstóll úrskurðaði flesta tolla Trump, eins og viðskiptahallatollana og tolla á ríki eins og Kína, Kanada og Mexíkó, ólögmæta en þeir fengu þrátt fyrir það að standa óbreyttir, þar til þeir verða teknir fyrir af hæstarétti Bandaríkjanna. Von er á úrskurði þaðan innan skamms.
Bandaríkin Donald Trump Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Skattar, tollar og gjöld Tengdar fréttir Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands „Ég er hér í dag vegna þess að milljónir Bandaríkjamanna hafa þungar áhyggjur af orðræðunni um yfirtöku Bandaríkjanna á Grænlandi, annað hvort með því að kaupa landið eða beita hervaldi,“ sagði öldungadeildarþingmaðurinn Jeanne Shaheen nú fyrir hádegi. 16. janúar 2026 12:39 Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings felldu í gær frumvarp sem hefði dregið úr völdum Donalds Trump, forseta, til að gera frekari árásir á Venesúela. Það er eftir að tveir þingmenn flokksins sem höfðu stutt frumvarpið lúffuðu undan þrýstingi frá Hvíta húsinu. 15. janúar 2026 09:59 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira
Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands „Ég er hér í dag vegna þess að milljónir Bandaríkjamanna hafa þungar áhyggjur af orðræðunni um yfirtöku Bandaríkjanna á Grænlandi, annað hvort með því að kaupa landið eða beita hervaldi,“ sagði öldungadeildarþingmaðurinn Jeanne Shaheen nú fyrir hádegi. 16. janúar 2026 12:39
Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings felldu í gær frumvarp sem hefði dregið úr völdum Donalds Trump, forseta, til að gera frekari árásir á Venesúela. Það er eftir að tveir þingmenn flokksins sem höfðu stutt frumvarpið lúffuðu undan þrýstingi frá Hvíta húsinu. 15. janúar 2026 09:59