Dyche æfur eftir tapið Valur Páll Eiríksson skrifar 10. janúar 2026 12:15 Dyche hugsar sig tvisvar um áður en hann veitir ákveðnum leikmönnum tækifæri með liði sínu næst. Robin Jones - AFC Bournemouth/AFC Bournemouth via Getty Images Sean Dyche, þjálfari Nottingham Forest, var óánægður með tap sinna manna fyrir B-deildarliði Wrexham í ensku bikarkeppninni í fótbolta í gær.
Wrexham vann leik gærkvöldsins eftir vítaspyrnukeppni en velska liðið hafði verið með yfirhöndina lengi vel; komst bæði 2-0 og 3-1 yfir í leiknum, sem lauk 3-3 áður en vítakeppnin tók við. Dyche gaf þónokkrum leikmönnum tækifæri til að spila sem hafa verið í minna hlutverki og líkt og sjá mátti á 2-0 stöðunni í hléi gekk þeim illa að grípa þann séns. Dyche gerði þrefalda skiptingu í hálfleik. „Fyrri hálfleikur var óásættanlegur. Leikmennirnir vita það og þeir þurfa að líta í spegil. Þeir sem komu inn á í hálfleik eiga hrós skilið. Þá litum við út eins og úrvalsdeildarlið,“ sagði Dyche sem skipti Callum Hudson-Odoi inn á eftir hléið og sá skoraði tvö mörk til að jafna leikinn 3-3. Dyche sendi þá skýr skilaboð til þeirra minni spámanna sem fengu sénsinn í gær. „Þessir leikmenn banka upp á hjá manni og spyrja: „Hvers vegna fæ ég ekki að spila?“. Svarið við þeirri spurningu liggur fyrir hjá nokkrum eftir kvöldið, ef ekki öllum. Við þurfum að gera breytingar vegna álags. Það er ljóst að þeir munu ekki banka upp á hjá mér á næstunni til að spyrja aftur hvers vegna þeir fái ekki að spila,“ sagði Dyche. Wrexham er í eigu leikaranna Ryan Reynolds og Rob Mac. Félagið hefur þotist upp deildirnar ensku í eigendatíð þeirra, þrjár á síðustu þremur árum, og stefnan sett hærra. Ákveðin varða náðist með sigri gærkvöldsins en Wrexham vann í gær úrvalsdeildarlið í fyrsta sinn frá árinu 1999, þegar liðið sló Middlesbrough út á sama stað í FA-bikarnum.
Enski boltinn Nottingham Forest Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fleiri fréttir „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Sjá meira