Kristín og Birta ráðnar til Origo Atli Ísleifsson skrifar 9. desember 2025 14:52 Kristín Gestsdóttir og Birta Ísólfsdóttir. Origo Birta Ísólfsdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður markaðssviðs Origo og Kristín Gestsdóttir sem mannauðsstjóri fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Origo. Með ráðningum sé ætlunin að styrkja enn frekar leiðtogateymi fyrirtækisins og styðja við áframhaldandi vöxt og umbreytingu. Um Birtu segir að hún komi til Origo með víðtæka reynslu af markaðsmálum, vörumerkjastjórnun og stefnumótun. „Hún hefur leitt umfangsmikil umbreytingarverkefni og byggt upp heildstæðar markaðsstefnur. Hún starfaði síðast hjá Arctic Adventures og sat í framkvæmdarstjórn félagsins þar sem hún leiddi sölu- og markaðsmál og síðar uppbyggingu og upplifun á áfangastöðum. Hjá Origo mun Birta leiða markaðsvið félagsins með áherslu á stefnumiðaða nálgun þar sem verður lögð áhersla á framsækna þjónustu fyrirtækisins og að skapa aukið virði fyrir viðskiptavininn,“ segir í tilkynningunni. Kristín Gestsdóttir kemur svo frá Sýn þar sem hún hefur starfað síðastliðin þrettán ár, lengst af við mannauðsmál. Þar hafi hún meðal annars leitt ráðningar og fræðslu, sinnt alhliða mannauðsráðgjöf og stjórnendaþjálfun auk þess að hafa tekið þátt í ferlamótun og þróun verklags á sviði mannauðsmála. Á undanförnum árum hefur hún jafnframt unnið þétt með forstjóra og framkvæmdastjórn félagsins og gegnt lykilhlutverki í stefnumótun, meðal annars við innleiðingu framtíðarstefnu og verkefnastýringu á stórum umbreytingarverkefnum. Um Origo segir að það sé rótgróið og leiðandi þekkingarfyrirtæki í upplýsingatækni sem hjálpi fyrirtækjum að halda forskoti í síbreytilegu umhverfi tækninnar. Félagið þjónustar viðskiptavini með ráðgjöf, nýsköpun og tæknilausnum sem einfalda flókin ferli, bæta þjónustu og skapa aukið virði.
Vistaskipti Upplýsingatækni Mest lesið Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Sjá meira