Blása í lúðra vegna atvinnuleysis á Suðurnesjum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 10. nóvember 2025 10:28 Frá Ljósanótt í Reykjanesbæ í sumar. Vísir/MHH Vinnumálastofnun hvetur atvinnuleitendur á Suðurnesjum til að leita til sín. Skráð atvinnuleysi á svæðinu mælist nú yfir 6,5 prósent. Þróunin gefi tilefni til markvissra aðgerða af hálfu Vinnumálastofnunar í samræmi við lög um atvinnuleysistryggingar og um vinnumarkaðsaðgerðir.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar. Samkvæmt gögnum Hagstofunnar mældist atvinnuleysi í landinu öllu meðal fólks á aldrinum 16 til 74 ára 3,2 prósent í september. ASÍ spáir að atvinnuleysi fyrir árið 2025 verði 4,5 prósent. Atvinnuleysi á Suðurnesjum er því miklu hærra en sem nemur meðaltali yfir landið. Atvinnuleitendur, sem skráðir eru hjá Vinnumálastofnun, eru hvattir til að hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum. „Þar veita ráðgjafar einstaklingsmiðaða þjónustu, sem felur í sér ráðgjöf, stuðning við atvinnuleit, hæfnimat og kynning á úrræðum sem standa til boða,“ segir í tilkynningu Vinnumálastofnunar. Atvinnurekendum á Suðurnesjum er einnig boðin þjónusta og ráðgjöf Vinnumálastofnunar. „Stofnunin veitir upplýsingar um vinnumarkaðsúrræði, ráðningarstyrki og aðstoðar fyrirtæki við að finna hæft starfsfólk. Samstarf atvinnurekenda og Vinnumálastofnunar er lykilatriði til að efla, virkja og styðja við atvinnuleitendur á svæðinu. Vinnumálastofnun mun áfram fylgjast náið með þróun mála og grípa til ráðstafana sem miða að því að styðja við atvinnulíf og atvinnuleitendur á Suðurnesjum.“ Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað verulega á Suðurnesjum undanfarin ár og er hlutfall þeirra töluvert hærra en víðast hvar á landinu. Í samantekt Þjóðskrár í upphafi árs kom fram að 32,2 prósent íbúa á Suðurnesjum eru erlendis ríkisborgarar. Fjöldi erlendra ríkisborgara með tilliti til einstakra sveitarfélaga er mestur í Reykjanesbæ að frátalinni Reykjavík þar sem hlutfall þeirra var 24% í lok árs 2024.
Vinnumarkaður Suðurnesjabær Reykjanesbær Grindavík Vogar Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Hækka stýrivexti aftur Viðskipti innlent „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Málmhlutur í maís Viðskipti innlent Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Viðskipti innlent Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Viðskipti innlent „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu Sjá meira