Ísraelar samþykkja friðaráætlun Trumps Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. september 2025 19:41 Netanjahú og Trump héldu sameiginlegan blaðamannafund. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hafa sammældust um tuttugu punkta áætlun sem binda á enda á stríðið á Gasa á fundi þeirra í dag. Í áætluninni er krafist að Gasa verði svæði sem ógni ekki nágrönnunum sínum og að framkvæmd verði fanga- og gíslaskipti. Samþykki Hamas ekki áætlunina segist Netanjahú ætla að „ljúka því sem þeir hófu.“
Rétt fyrir fundinn, sem hófst um klukkustund á eftir áætlun, fengu blaðamenn sem voru viðstaddir tölvupóst frá Hvíta húsinu þar sem greint var frá áætlun um að „binda enda á átökin á Gasa.“ Tuttugu punkta áætlun um að binda enda á stríðið Um er að ræða tuttugu punkta áform eða áætlun. Samkvæmt NYT, sem hefur áætlunina undir höndum, er til að mynda ætlunin að Gasaströndin verði svæði án hryðjuverka sem muni ekki ógna nágrönnunum sínum. Landsvæðið verði endurbyggt með núverandi íbúa þess í huga og íbúarnir hvattir til að snúa aftur til síns heima. Samþykki báðir aðilar tillöguna sé stríðinu lokið þá þegar. Ísraelar muni hverfa aftur á fyrir fram ákveðnum stað til að taka á móti gíslum sem eru í haldi Hamas. Þá segir einnig að afhending gísla eigi að eiga sér stað innan 72 klukkustunda frá því að Ísraelar samþykkja formlega tillöguna. Gegn afhendingu gísla munu Ísraelar falla frá lífstíðardómum 250 fanga í þeirra haldi auk sautján hundruð fanga sem eru í þeirra haldi. Fyrir hvern gísl sem Ísraelar fá afhent hyggjast þeir afhenda Palestínubúum jarðneskar leyfar fimmtán Gasabúa. Í umfjöllun NYT er bent á að ákveðnar þversagnir megi finna í áætlun Trumps. Til að mynda segir þar að bæði forsvarsmenn Ísrael og Hamas þurfi að samþykkja áætlunina til að henni verði fylgt eftir. Hins vegar segir einnig að ef Hamas frestar eða samþykkir ekki áætlunina myndu ákveðnir þættir áætlunarinnar halda áfram á „hryðjuverkalausum svæðum“ sem Ísrael myndi afhenda „friðarnefnd.“ Einnig er bent á að engin loforð liggi fyrir um að Ísraelsher yfirgefi alveg Gasa. Tekið er fram að Ísraelsher muni hörfa að ákveðnu svæði sem er innan Gasa, þangað til að Gasa er öruggt gegn endurvakinni ógn um hryðjuverk. Nákvæmar lýsingar á hvers konar ógn er að ræða og hvenær henni yrði lokið liggja ekki fyrir. Því geti Ísraelar verið þar eins lengi og þeim lystir. Trump sagði þá á fundinum að ef Hamas samþykkir ekki áformin muni hann styðja Ísraela á meðan þeir stöðvi Hamas algjörlega. „Þetta samkomulag mun leiða til sjálfbærs friðar til langs tíma,“ sagði Bandaríkjaforsetinn á sameiginlegum blaðamannafundi hans með Netanjahú. Segist nálægt algjörum friði „Við erum að minnsta kosti mjög mjög nálægt,“ sagði Trump er hann hóf blaðamannafundinn og vísar þar í frið á Gasaströndinni. „Þetta gæti verið einn besti dagur siðmenningarinnar.“ Trump segist hafa stuðning fjölda leiðtoga ríkja í Miðausturlöndunum, svo sem Katar og Sádí-Arabíu. Bæði Arabaríki og múslimaríki hafi samþykkt að afvopna Gasa eins hratt og mögulegt væri. Það væru því einungis Hamas sem ættu eftir að samþykkja áðurnefnda áætlun. Til þess að fylgja þessari áætlun eftir hyggst Trump búa til eins konar friðarráð. Það verði alþjóðlegt ráð undir hans eigin stjórn en nefnir Trump að Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, vilji vera hluti af ráðinu. Þá segir hann að fjöldi annarra ráðamanna vilji eiga sæti þar en nefnir engin nöfn. „Allir vilja vera í ráðinu,“ sagði Trump. Hægt að ljúka stríðinu á auðvelda eða erfiða mátann Netanjahú tók einnig til máls en hóf ræðuna sína á að segjast styðja plan Bandaríkjaforsetans. Þá sagði hann að ef Hamas samþykkti planið myndu Ísraelar hörfa frá Gasa. Þeir myndu þó halda svæðinu fyrir innan „öryggissvæði“ um ókominn tíma. „Ef Hamas samþykkir ekki áætlunina munum við ljúka því sem við hófum,“ segir Netanjahú. „Það er hægt að gera þetta á auðvelda eða erfiða mátann. Hvort sem er, þá þarf að ljúka þessu.“ Þar sem að Netanjahú samþykkti formlega áætlunina fyrir hönd Ísraela hefur Hamas nú, samkvæmt áætluninni, 72 klukkustundir til að skila öllum gíslum sem eru í þeirra haldi. Hann segir áformin geta markað nýtt upphaf í Miðausturlöndunum. Netanjahú segir jafnframt að í þessu nýja upphafi eigi heimastjórn Palestínumanna, sem er við völd á Vesturbakkanum, ekki að heima við stjórnvölinn nema þau fari í róttæka og raunverulega endurskipulagningu. Netanjahú og Trump vildu ekki svara spurningum að fundinum loknum. Trump sagði að það væri ekki rétt að fara í að svara spurningum þar sem þeir hefðu ekki skrifað formlega undir öll skjölin og slíkt.
Bandaríkin Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Donald Trump Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Fleiri fréttir „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Sjá meira