Felldu talsmann hernaðararms Hamas Samúel Karl Ólason skrifar 31. ágúst 2025 14:04 Frá jarðarför á Gasa í dag, þar sem fjölmargir hafa fallið í árásum Ísraela. AP/Jehad Alshrafi Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir að Abu Obeida, talsmaður al-Qassam-sveita Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í loftárás í gær. Heilbrigðisstarfsmenn á Gasaströndinni segja að minnsta kosti 43 Palestínumenn liggja í valnum frá því í gær. Flestir þeirra í Gasaborg, sem Ísraelar hafa lýst yfir að sé nú átakasvæði.
Í yfirlýsingu segir Katz að talsmaðurinn hafi verið sendur til „botns helvítis“ ásamt öðrum föllnum andstæðingum Ísrael frá Íran, Gasa, Líbanon og Jemen. Ísraelar hafa ráðið marga af æðstu leiðtogum Hamas-samtakanna af dögum á undanförnum tveimur árum. Al-Qassam-sveitirnar eru hernaðararmur Hamas samtakanna. Dauði Abu Obeida hefur ekki verið staðfestur af þeim enn sem komið er. דובר טרור החמאס אבו עוביידה חוסל בעזה, ונשלח לפגוש את כל מסוכלי ציר הרשע מאיראן, עזה, לבנון ותימן בתחתית הגיהינום.ברכות לצה"ל ולשב"כ על הביצוע המושלם.בקרוב, עם התגברות המערכה על עזה, יפגוש שם עוד רבים משותפיו לפשע - מרצחי ואנסי החמאס. pic.twitter.com/e6cb0CRLYy— ישראל כ”ץ Israel Katz (@Israel_katz) August 31, 2025 Ísraelski herinn segir í yfirlýsingu að Obeida hafi verið einn af síðustu leiðtogum Hamas, sem stýrði samtökunum fyrir árásirnar á Ísrael þann 7. október 2023. Hann hafi um árabil komið að því að semja og dreifa áróðri Hamas-samtakanna og hafi í raun verið andlit hryðjuverkasamtakanna. Mynd af Abu Obeida, sem ísraelski herinn birti í dag. AP fréttaveitan hefur eftir heilbrigðisstarfsmönnum á Gasaströndinni að fjöldi fólks hafi dáið í árásum Ísraela um helgina. Margir þeirra hafi verið að sækjast eftir neyðaraðstoð þegar skotið var á þá. Fyrr í dag var sagt frá því að ráðamenn í Ísrael ætluðu að draga úr flæði neyðaraðstoðar til Gasaborgar en til stendur að fara í umfangsmikla hernaðaraðgerð þar. Þúsundir hafa flúið frá borginni en Al-Jazeera segir fjölmarga halda þar til enn. Margir eru of illa á sig komnir til að flýja og þá liggur ekki fyrir hvert þeir sem hafa flúið geta farið. Sjá einnig: Ætla að hægja á eða stöðva flæði neyðaraðstoðar Ísraelar hafa á undanförnum vikum verið með mikla viðveru hermanna í útjaðri Gasaborgar og í Jabailiya-flóttamannabúðunum, í undirbúningi fyrir umfangsmeiri aðgerðir í borginni. Að minnsta kosti 63.371 Palestínumaður hefur dáið á Gasaströndinni frá því hernaður Ísraela hófst þar, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gasa, sem stýrt er af Hamas. Felldu forsætisráðherra Húta Leiðtogar Húta í Jemen tilkynntu í gær að Ahmed al Rahawi, forsætisráðherra hópsins og aðrir ráðherrar og háttsettir meðlimir, hefðu verið feldir af Ísraelum í loftárás á fimmtudaginn. Sú árás var gerð þegar ríkisstjórnarfundur stóð yfir, nokkrum dögum eftir að Hútar skutu eldflaug að Ísrael, eins og þeir hafa ítrekað gert á undanförnum árum. Rahawi var, samkvæmt frétt Sky News, ekki í innsta hring leiðtoga Húta. Þess í stað var það á höndum hans og ríkisstjórnar hans að stýra yfirráðasvæði Húta í Jemen. Hútar, sem notið hafa mikils stuðnings frá klerkastjórninni í Íran í gegnum árin, stjórna Sanaa, höfuðborg Jemen, og stórum hlutum landsins í norðri og vestri eftir umfangsmikil átök við stjórnarher landsins sem hófust árið 2014. Átökin hafa leitt til hrikalegs mannúðarástands í Jemen, þar sem fátækt er mikil. Hungursneyð og smitsóttir hafa leikið í íbúa landsins grátt. Síðan í nóvember 2023 hafa Hútar gert tugi loftárása á flutningaskip sem átt hafa leið um Rauðahafið. Hútastjórnin segir árásirnar hafa verið gerðar til að sýna Palestínumönnum samstöðu, skotunum sé beint að skipum með tengingar við Ísrael. Bandaríkjamenn gerðu fyrr á árinu umfangsmiklar árásir sem beindust gegn Hútum. Þær árásir skiluðu að virðist ekki miklum árangri en Rahawi er æðsti meðlimur hópsins sem felldur er í árás síðan árásir Ísraela og Bandaríkjamanna hófust. Árásum Húta á skip á Rauðahafi hefur þó fækkað en það hefur umferð skipa um svæðið einnig gert. Abdul-Malik al-Houthi, leiðtogi Húta, hefur heitið því að fjölga árásum á Ísrael. Þetta var meðal þess sem hann sagði í ávarpi sem sýnt var í sjónvarpi á yfirráðasvæði Húta. Houthi Leader Abdul-Malik al-Houthi promises to intensify attacks against Israel. pic.twitter.com/A88LVWvRPx— Clash Report (@clashreport) August 31, 2025
Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Hernaður Jemen Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira