Viðskipti innlent

Ís­land klemmist á milli í al­þjóð­legu tollastríði

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hannesson er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Vísir/Egill Aðalsteinsson

Ísland virðist vera að klemmast á milli í tollastríðinu sem geysar á alþjóðamörkuðum að sögn framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins. Hann segir of algengt að íslensk stjórnvöld hafi ekki rétt gögn í höndunum í samningaviðræðum við önnur ríki. Þau þurfi að hafa tölurnar á hreinu í viðræðum um lækkun tolla

Boðuð tollahækkun Bandaríkjanna á íslenska útflutning upp á 15 prósent tekur gildi á morgun. Í ofanálag hefur Evrópusambandið tilkynnt um nýja verndartolla á járnblendi frá Íslandi og Noregi.

Stjórn Íslensk-evrópska verslunarráðsins lýsir í ályktun frá í morgun, yfir miklum áhyggjum af verndartollunum. Bent er á að það veiki stöðu Íslands í málinu að leggja verndartolla á vörur frá ESB sem eiga samkvæmt EES- samningnum að vera tollfrjálsar með því að tollflokka þær ranglega. Stjórn ráðsins kallar eftir  samstöðu um að hvetja íslensk stjórnvöld til að hætta samningsbrotum sínum á sviði tollamála. Fram kemur í ályktuninni að með því að vera ábyrgur samningsaðili, sem virði skyldur sínar, verði íslenska ríkið í betri stöðu til að gera sambærilega kröfu til gagnaðila.

Grafalvarleg staða

Sigurður Hannesson formaður Samtaka iðnaðarins óttast að versnandi viðskiptakjör hafi neikvæð áhrif á lífskjör hér á landi.

„Það er auðvitað grafalvarlegt að viðskiptakjörin séu að versna og á sama tíma er mjög alvarlegt að Evrópusambandið hyggist vernda starfsemi kísiljárns í sambandinu en setja verndartolla á sömu starfsemi hér. Ísland er að klemmast á milli í tollastríðinu sem virðist geysa á alþjóðamörkuðum,“ segir hann.

Hann segir afar mikilvægt að íslensk stjórnvöld hafi rétt gögn í höndunum þegar þau ræða við bandarísk yfirvöld um tollalækkun.

„Stjórnvöld hafa óskað eftir fundi vegna málsins og þá þurfa rétt gögn að liggja fyrir. Bandaríkin horfa bara á sínar upplýsingar og þeirra gögn sýna að þau séu í viðskiptahalla gagnvart Íslandi okkar gögn sýna svo annað. Það er umhugsunarefni að í hvert sinn sem upp kemur einhvers konar krísa hér á landi þá kemur í ljós að gögn og upplýsingar hér eru ekki réttar og það þarf að leiðrétta þau,“ segir Sigurður.

Hann telur að í samningaviðræðum þjóðanna þurfi að leggja áherslu á aukin viðskipti þeirra á milli. 

„Það kallar á auknar fjárfestingar af okkar hálfu. Þá gæti verið hyggilegt að horfa til viðskipta með gervigreind  sem er vaxandi iðnaður á heimsvísu. Við höfum ekki tekið þátt í því kapphlaupi að neinu ráði,“ segir hann að lokum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×