Skoðun

Verkin sem ekki tala

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Það veldur greinilega óþægindum hjá ríkisstjórninni og fylgismönnum hennar hve virk stjórnarandstaðan hefur verið á Alþingi að undanförnu. Umræðan er sögð of mikil, of gagnrýnin, og að þeirra mati, helst til bagaleg. Það ætti að segja sitt. Þegar þeir sem fara með völdin forgangsraða því frekar að gagnrýna og fussa af oflæti yfir umræðunni sjálfri í stað málanna sem um er rætt, þá er fokið í flest skjól.

Við í Sjálfstæðisflokknum lítum ekki á lýðræðislega umræðu sem óþarfa. Við tökum umræðuna því við tökum aðhaldshlutverk okkar alvarlega. Við ræðum frumvörp ekki til þess að tefja, heldur til þess að tryggja að þau séu vönduð, ígrunduð og réttlát. Það er ekki stjórnarandstaðan sem er að valda töfum á Alþingi – það eru vanhugsuð frumvörp ríkisstjórnarinnar sem skila sér seint og illa unnin í þingsal.

Við sjáum mál eftir mál sem ekki eru tilbúin. Frumvörp eru lögð fram án samráðs, án kostnaðarmats, án innbyrðis samstöðu innan ríkisstjórnarinnar. Sum þeirra beinlínis stangast á við stefnu flokkanna sem standa að þeim. Samhliða er reynt að mála upp þá mynd að andstaðan við þessi frumvörp sé einungis pólitískir leikir. En það er fjarri lagi. Þetta snýst um gæði, ábyrgð og gegnsæi.

Það er ekki hlutverk okkar að klappa þessum málum í gegn þegjandi. Það er ekki af ástæðulausu að Alþingi sé vettvangur lýðræðislegrar umræðu – í stað stimpilpúða. Við ræðum málin vegna þess að fólkið í landinu á það skilið að frumvörp sem snerta líf þess, afkomu og velferð, séu vönduð. Og við eigum ekki að biðjast afsökunar á því að gera kröfur til framkvæmdavaldsins.

Það er kaldhæðnislegt að ríkisstjórnin, sem sagðist ætla að láta verkin tala, skuli nú vilja láta umræðuna þagna. Kannski er það af því að verk hennar eru fá, illa undirbúin og oft í andstöðu við eigin stefnu og yfirlýsingar. Þá er auðveldara að beina spjótum sínum að þeim sem spyrja í stað þess að svara fyrir eigin stefnu.

Við í Sjálfstæðisflokknum ætlum að halda áfram að spyrja, ræða og gagnrýna. Ekki vegna þess að við séum á móti breytingum – heldur vegna þess að við viljum að þær séu skynsamar, ábyrgar og farsælar fyrir þjóðina. Það er hlutverk stjórnarandstöðu í lýðræðisríki. Og við ætlum ekki að bregðast því hlutverki.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Rödd barna og ung­menna hunsuð í barnvænu sveitar­fé­lagi?

París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar

Sjá meira


×