Uppgjörið: Norður-Írland - Ísland 1-0 | Bragðdauft í Belfast Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 10. júní 2025 17:46 Guðlaugur Victor í baráttunni við Isaac Price. Ramsey Cardy/Getty Images Eftir 3-1 útisigur gegn Skotum á föstudag var vonast til að íslenska karlalandsliðið í fótbolta myndi tengja saman sigra þegar það sótti lið Norður-Írlands í Belfast. Annað kom á daginn þar sem Isaac Price skoraði eina mark leiksins og heimamenn unnu sanngjarnan 1-0 sigur. Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 1-0 tap er liðið heimsótti Norður-Írland í vináttúlandsleik í kvöld. Íslenska liðið lék manni fleiri seinasta hálftíman, en náði ekki að nýta sér liðsmuninn. Íslensku strákarnir byrjuðu vel og voru meira með boltann á upphafsmínútunum. Íslenska liðið skapaði sér góðar stöður fyrstu tuttugu mínútur leiksins eða svo, en tókst ekki að búa sér til færi til að koma boltanum í netið. Þegar fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður var hins vegar komið gott jafnvægi á leikinn. Liðin þreifuðu fyrir sér, en færin létu heldur betur á sér standa. Það var ekki fyrr en að um tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik að það dró loksins til tíðinda. Arnór Ingvi Traustason tapaði boltanum þá á hættulegum stað og heimamenn nýttu sér það til hins ýtrasta. Isaac Price fékk boltann við vítateigshornið vinstra meginn og stýrði boltanum snyrtilega í fjærhornið þar sem Hákon Rafn Valdimarsson náði ekki til hans. Isaac Price fagnar sigurmarki sínu.Charles McQuillan/Getty Images Líkt og stór hluti fyrri hálfleiks voru upphafsmínútur seinni hálfleiks bragðdaufar. Heimamenn voru líklegri til afreka og íslenska liðið átti í stökustu vandræðum. Dæmið snérist þó við á 57. mínútu þegar Hákon Arnar Haraldsson var við það að sleppa í gegn. Brodie Spencer elti Skagamanninn og nartaði í hælana á honum, með þeim afleiðingum að Hákon féll til jarðar og Spencer var sendur í snemmbúna sturtu með beint rautt spjald. Íslenska liðið skapaði sér nokkur færi í kjölfarið og var hársbreidd frá því að jafna metin þegar skalli frá Andra Lucasi Guðjohnsen stefndi á markið. Markaskorarinn Isaac Price var hins vegar mættur niður á línu og bjargaði heimamönnum fyrir horn. Þrátt fyrir liðsmuninn náði íslenska liðið ekki að koma boltanum í netið, og í raun sköpuðu íslensku strákarnir ekki mikið fleiri færi. Niðurstaðan varð því að lokum 1-0 sigur Norður-Íra og íslenska karlalandsliðið þarf að enn að bíða eftir því að ná að tengja saman tvo sigra í einum og sama landsleikjaglugganum. Atvik leiksins Brodie Spencer nældi sér í beint rautt spjald eftir rétt tæplega klukkutíma leik. Íslenska liðið hafði átt í vandræðum fram að þessu, en fann leiðir framar á völlinn eftir spjaldið. Stjörnur og skúrkar Þegar lið spilar manni fleiri í rúman hálftíma án þess að skora, gegn ekki betra liði en Norður-Írlandi, er erfitt að fara að velja einhverjar stjörnur. Framan af leik var hins vegar lítið sem ekkert að frétta hjá íslenska liðinu og margt sem hefði mátt betur fara. Arnór Ingvi Traustason tapaði boltanum á slæmum stað sem leiddi til marks heimamanna, Logi Tómasson var langt frá sínu besta og það sama má segja um Willum Þór Willumsson. Hér eru aðeins talin upp nokkur nöfn, en listinn er alls ekki tæmandi. Dómarinn Morten Krogh og danska dómarateymið hans gerði vel í kvöld. Framan af leik virtust Danirnir ekki þurfa að hafa mikið fyrir hlutunum, en í seinni hálfleik færðist smá hiti í leikinn. Brodie Spencer var heppinn að sleppa við gult spjald snemma í seinni hálfleik, en braut svo á Hákoni Arnari Haraldssyni stuttu seinna þegar hann var við það að sleppa í gegn og var sendur beint í sturtu. Klufalegt brot, en líklega réttur dómur. Stemning og umgjörð Stemningin á Windsor Park í Belfast var góð, enda völlurinn svo gott sem smekkfullur af heimamönnum. Framan af leik fylgdi spilamennskan ekki með stemningunni, en það hitnaði í kolunum í seinni hálfleik. Landslið karla í fótbolta