Sport

Bein út­sending: Kristinn Gunnar sigur­vegari!

Garpur Ingason Elísabetarson og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
203 hlupu af stað klukkan níu á laugardagsmorgun.
203 hlupu af stað klukkan níu á laugardagsmorgun. Vísir/Viktor Freyr

Bakgarðshlaupið í Öskjuhlíð fer fram um helgina. Sýnt verður beint frá því á Stöð 2 Vísi og Vísi.

Hlaupið hefst klukkan 09:00 en beina útsendingu frá því má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Beina textalýsingu frá hlaupinu má finna neðst í fréttinni.

Keppendur hlaupa 6,7 kílómetra hring á innan við klukkutíma og eru svo ræstir af stað að nýju þegar nýr klukkutími hefst. Þeir hlaupa svo eins marga hringi og þeir geta þar til aðeins einn stendur eftir sem sigurvegari og má þá ekki hlaupa lengra.

203 hlauparar hófu keppni klukkan níu í Öskjuhlíðinni.

Kristinn Gunnar Kristinsson er sigurvegari Bakgarðshlaupsins í Öskjuhlíð árið 2025. Kristinn hljóp 43 hringi eða 288km en Mari Jaersk hljóp af stað með Kristni út í 43. hringinn en játaði sig sigraða snemma í brautinni og því er Kristinn sigurvegari og virkilega vel að því kominn. 

Íslandsmetið í Bakgarðshlaupi er 62 hringir en Þorleifur Þorleifsson setti það í Elliðaárdalnum í október síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×