Viðskipti innlent

Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta árs­fjórðungi

Atli Ísleifsson skrifar
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri segir að fyrsti ársfjórðungur 2025 hafi einkennst af talsverðum sveiflum á alþjóðlegum mörkuðum. Þá ríki ákveðin óvissa um áhrif hækkunar tolla.
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri segir að fyrsti ársfjórðungur 2025 hafi einkennst af talsverðum sveiflum á alþjóðlegum mörkuðum. Þá ríki ákveðin óvissa um áhrif hækkunar tolla. Vísir/Vilhelm

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 5,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025. Vaxtatekjur jukust um tæp sjö prósent, samanborið við sama ársfjórðung í fyrra og þóknanatekjur um tæp tvö prósent.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum til Kauphallar. Þar segir að arðsemi eigin fjár hafi verið 9,4 prósent á tímabilinu.

Farið er yfir helstu atriði á tímabilinu í tilkynningunni:

  • Hagnaður af rekstri nam 5,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025 (1F24: 5,4 milljarðar króna). Arðsemi eigin fjár var 9,4% á ársgrundvelli (1F24: 9,8%).
  • Hreinar vaxtatekjur námu 12,9 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025 og hækkuðu um 817 milljónir króna á 1F25 samanborið við 1F24.
  • Vaxtamunur var 3,2% á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 3,0% á fyrsta ársfjórðungi 2024.
  • Hreinar þóknanatekjur jukust um 1,9% samanborið við fyrsta ársfjórðung 2024 og námu samtals 3,1 milljarði króna á fjórðungnum.
  • Hrein fjármagnsgjöld voru 986 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við fjármagnsgjöld að fjárhæð 236 milljónir króna á 1F24.
  • Aðrar rekstrartekjur námu 467 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við 1.098 milljónir króna á 1F24.
  • Stjórnunarkostnaður nam 7,4 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við 7,1 milljarð króna á 1F24, sem er 4,0% hækkun á milli ára.
  • Kostnaðarhlutfall bankans var 47,6% á fjórðungnum. Kostnaðarhlutfallið var 43,9% á 1F24.
  • Virðisrýrnun fjáreigna var 3 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við virðisrýrnun sem nam 704 milljónum króna á fyrsta ársfjórðungi 2024. Áhættukostnaður útlána (e. cost of risk) var 0,1 punktur á ársgrundvelli á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 23 punkta á sama ársfjórðungi 2024.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 3,5 milljarða króna á fjórðungnum frá fjórða ársfjórðungi 2024 og voru 1.299 milljarðar króna í lok fyrsta ársfjórðungs 2025.
  • Innlán frá viðskiptavinum jukust um 1,1% milli loka fjórða ársfjórðungs 2024 og fyrsta ársfjórðungs 2025 og námu 937 milljörðum króna í lok fjórðungsins.
  • Eigið fé nam 217,9 milljörðum króna í lok ársfjórðungsins, samanborið við 227,4 milljarða króna í lok árs 2024.
  • Eiginfjárhlutfall var 21,6% í lok fyrsta ársfjórðungs 2025, samanborið við 23,2% í árslok 2024. Samsvarandi eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 (CET1) var 18,6%, samanborið við 20,1% í árslok 2024. Eiginfjárhlutfall almenns þáttar 1 var 320 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila í lok ársfjórðungsins, og hærra en fjárhagslegt markmið bankans um að vera með 100-300 punkta eiginfjár svigrúm umfram kröfur eftirlitsaðila.
  • Lágmarkskrafa um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (MREL) er 19,6% af áhættugrunni, til viðbótar við samanlagða kröfu um eiginfjárauka. Í lok fyrsta ársfjórðungs 2025 var MREL bankans 37,8%, 830 punktum yfir kröfum eftirlitsaðila.

Sveiflur á mörkuðum og óvissa um áhrif tolla

Haft er eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, að fyrsti ársfjórðungur 2025 hafi einkennst af talsverðum sveiflum á alþjóðlegum mörkuðum. Þá ríki ákveðin óvissa um áhrif hækkunar tolla.

„Óvissan hefur haft áhrif á hlutabréfamarkaðinn hér heima og lækkaði arðgreiðsluleiðrétt úrvalsvísitala OMX Iceland 15 um 7,7% á fyrsta ársfjórðungi.

Afkoma Íslandsbanka á fyrsta ársfjórðungi 2025 nam 5,2 milljörðum króna, sem er um 3% yfir spám greinenda. Vaxtatekjur jukust um tæp 7%, samanborið við sama ársfjórðung í fyrra og þóknanatekjur um tæp 2%. Vaxtamunur var 3,2% á fjórðungnum. Arðsemi eigin fjár var 9,4% á ársgrundvelli og kostnaðarhlutfallið 47,6%, sem hvort um sig er utan markmiða bankans. Neikvæð afkoma fjármunatekna, sem nemur 986 milljónum króna, hefur áhrif á afkomu bankans á fjórðungnum,“ segir Jón Guðni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×