Hvers vegna hafa Svíar ekki tekið upp evruna? Júlíus Valsson skrifar 15. janúar 2025 17:02 Í september 2003 greiddi sænska þjóðin atkvæði um það hvort hún vildi halda sænsku krónunni eða taka upp evruna. Mikill meirihluti, 55,9 prósent, vildi halda krónunni. Ákvörðunin var tekin eftir mikla og víðtæka umræðu og var kjörsókn mjög mikil eða 82%. Andstaðan við evruna hefur aukist með tímanum. Málið hefur þó lengi verið umdeilt í Svíþjóð einkum vegna gengissigs sænsku krónunnar gagnvart evru (um 10% á undanförnum fimm árum). Skv. Maastricth samkomulaginu frá 1992 er öllum aðildarríkjum ESB (nema Danmörku) skylt að taka upp evru. Helstu rök Svía fyrir því að halda sænsku krónunni Sænski seðlabankinn getur rekið sína eigin vaxtastefnu, sem er klæðskerasniðin að sænska hagkerfinu. Vextir í Svíþjóð geta þannig verið frábrugðnir vöxtum Seðlabanka Evrópu (ECB) þegar innlendar aðstæður krefjast þess, til dæmis ef sænska hagkerfið lendir í einhvers konar heimatilbúinni kreppu. Reynslan frá árunum 2006 til 2014, leiddi í ljós fleiri kosti við að halda sænsku krónunni. Krónan veikist yfirleitt í tengslum við efnahagskreppur en það getur raunar verið mikill kostur fyrir efnahaginn og stutt við hagkerfið því vörur sænskra útflutningsfyrirtækja verða ódýrari þegar krónan veikist gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Þetta auðveldar þeim að selja vörur til annarra landa. Þetta hefur m.a. valdið því að Svíþjóð stóð sig mun betur en mörg önnur lönd í alþjóðlegu fjármálakreppunni vegna veikingar sænsku krónunnar, sem virkaði sem höggdeyfir. Sömu sögu má segja um Ísland og íslensku krónuna. Ef Svíar taka upp evru geta þeir ekki lengur yfirtekið banka eins og þeir gerðu í fyrri bankakreppum. Rannsóknir benda til þess að Svíþjóð sé mjög ofarlega á lista yfir þau lönd sem önnur ESB-ríki vilja eiga samstarf við, þó svo Svíar séu utan evrunnar. Sænski seðlabankinn (Riksbanken) spáir því að gengi sænsku krónunnar muni styrkjast í náinni framtíð. Sænska krónan sé nú vanmetin en mikill meirihluti gjaldeyrisviðskipta með sænsku króna fer fram erlendis m.a. í London, eins og gildir um aðra gjaldmiðla. Reynsla Finna Um mitt ár 2000 stóð efnahagur Finnlands frammi fyrir miklum vandamálum þegar snjallsímar komu fyrst á markað. Fram að þeim tíma hafði Nokia verið stærsti farsímaframleiðandi heims en með nýjum framleiðendum lenti Nokia í miklum erfiðleikum í samkeppninni einkum við iPhone frá Apple. Það olli miklum vandamálum fyrir finnska farsímarisann Nokia, en á sama tíma dró starfræn þróun mikið úr blaðalestri sem skapaði alvarleg vandamál fyrir pappírsiðnaðinn í Finnlandi vegna minnkandi eftirspurnar eftir pappír. Niðurstaðan var sú, að atvinnuleysi jókst og Finnland neyddist til að taka háar fjárhæðir að láni til að styðja við efnahagslífið. Þrátt fyrir hvatann af þeim ráðstöfunum hefur efnahagur Finnlands vaxið minna og hægar en í öðrum Norðurlöndum eftir fjármálakreppuna, auk þess sem ríkisskuldir eru þar mun hærri. Þróunin hefði aldrei orðið eins slæm fyrir Finna ef landið hefði kosið að standa utan evrunnar vegna þess að eigin gjaldmiðill, eins og sá sænski, hefði veikst á kreppuárunum og þannig hjálpað útflutningsiðnaði landsins. Útlitið er því ansi dökkt fyrir Finnland þegar næsta efnahagskreppa skellur á. Annar ókostur við að vera hluti af evrunni sá að Svíar neyðast þá til að aðstoða önnur evruríki ef ný efnahagskreppa kæmi upp í Evrópu. Miðað við hversu mikið Finnland þurfti að aðstoða Grikkland í evrukreppunni hefur það verið áætlað að Svíþjóð sem evruland myndi neyðast til að ábyrgjast lán að jafnvirði 1.500–2.000 milljarða sænskra króna ef til dæmis Frakkland eða Ítalía lenda í svipuðum vandræðum, sem jafngildir um eins árs skatttekjum sænska ríkisins. Bankasamband Evrópu Aðild að ESB og upptaka evru fylgir þátttaka í Bankastofnun Evrópu (e. European Banking Authority, EBA) eða Bankasambandi Evrópu. Reglur ESB banna alfarið ríkjum sambandsins að yfirtaka banka í kreppu, en það var einmitt slík yfirtaka, sem hafði þau jákvæðu áhrif að Svíþjóð komst tiltölulega heilu og höldnu út úr alþjóðlegu fjármálakreppunni, eins og þegar sænska ríkið yfirtók fjárfestingarbankana Carnegie og Max Matthiessen í fjármálakreppunni árið 2008. Ef Svíar taka upp evru þá tapa þeir tækifærinu til að bregðast við á sama hátt og í fyrri bankakreppum. Þetta skilja flestir Íslendingar mæta vel! Íslenska krónan stendur sig mjög vel. Velgengni Svía er sænsku krónunni að þakka að verulegu leyti Rannsóknir benda til þess að Svíþjóð sé mjög ofarlega á lista yfir þau lönd sem önnur ESBríki vilja eiga samstarf við, þrátt fyrir að Svíar séu utan evrunnar. Sumir sænskir hagfræðingar halda því þó fram, að hvorki krónan né evran séu kraftaverkauppskriftir að efnahagslegum árangri. Innan evrusvæðisins hafi það breyst hvaða ríkjum hafi gengið vel og hvaða ríki hafi átt í erfiðleikum frá því að evran var tekin upp fyrir rúmum tuttugu árum. Menn verði sífellt sannfærðari um að aðrir þættir í efnahagsstefnu lands, eins og skattkerfi, viðskiptaumhverfi og regluumhverfi, skipta meira máli fyrir vöxt og framleiðni en val á gjaldmiðli. Sænski seðlabankinn (Riksbanken) spáir því að gengi sænsku krónunnar muni styrkjast í náinni framtíð. Sænska krónan sé nú vanmetin en mikill meirihluti gjaldeyrisviðskipta með sænsku krónuna fer fram erlendis m.a. í London, eins og með aðra gjaldmiðla. Efnahagur landsins sé þó ekki háður gengi sænsku krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Málið er flóknara en það. Norðurlandakróna í farvatninu? Athyglisvert er að norska og sænska krónan eru í dag næstum nákvæmlega sama virði. Báðir gjaldmiðlanir hafa lækkað um það bil sömu upphæð gagnvart evru og dollar, þrátt fyrir að Noregur sé með eitt sterkasta hagkerfi heims. Samanlagt eru Norðurlöndin með mjög sterkt hagkerfi, stærra og sterkara en Rússland. Mikilvægt er því að Norðurlönd efli samstarf sitt á ýmsum sviðum samfélagsins, ekki síst í efnahagsmálum, sem er mun mikilvægara en að Svíar afhendi Seðlabanka Evrópu (ECB) í Frankfurt vald yfir gjaldmiðlinum. Tími er kominn tími til að fara að ræða sameiginlegan norrænan gjaldmiðil eins og lagt hefur verið til. Öflug Norðurlönd eru hagfeld fyrir okkur sjálf, fyrir Evrópu og umheiminn! Áfram íslenska krónan! Höfundur er vildarvinur íslensku krónunnar. Heimildaskrá Svenska Dagbladet (svd.se) Sverikes Riksbank (riksbank.se) Jämtlands Tidning (www.jamtlandstidning.se) Vildarvinir íslensku krónunnar (www.facebook.com/groups/297737180647028/) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslenska krónan Svíþjóð Finnland Evrópusambandið Júlíus Valsson Mest lesið Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar