„Búinn að öskra þannig að ég reyndi að vera uppbyggjandi“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. október 2024 21:50 Ísak segir leiðtoga liðsins verða að standa storminn betur af sér. vísir / pawel Ísak Wium, þjálfara ÍR, leið „mjög illa“ eftir fjórða tap liðsins í jafnmörgum leikjum í Bónus deild karla. ÍR var yfir allan fyrri hálfleikinn í kvöld gegn Þór Þorlákshöfn en gaf verulega eftir í seinni hálfleik og tapaði örugglega að endingu, 73-84. „
Þeir bara spila töluvert betur en við og við hættum að djöflast í vörn sem var uppleggið í leiknum. Við höldum þeim í 33 stigum í fyrri hálfleik en hættum að djöflast í vörn og þá verða sóknirnar erfiðari,“ sagði þjálfarinn strax eftir leik. Hann reyndi að koma sínum mönnum aftur á rétta braut með leikhléum og breytingum, en ekkert virtist ganga frekar en í fyrstu þremur þremur leikjum tímabilsins. „Síðustu þrjá leiki er ég búinn að öskra þannig að ég reyndi að vera uppbyggjandi og jákvæður. Við erum með leik hérna en menn deyja og viljinn er kannski ekki meiri en þetta.“ Eftir fjóra leiki og fjögur töp sér þjálfarinn skýrt hvað þarf að breytast. „Hugarfarið hjá ákveðnum leikmönnum liðsins. Leiðtogarnir þurfa að geta staðið af sér storminn betur og örugglega þjálfarinn líka sko, en við gefumst of oft upp og náum ekki að halda orkustiginu sem við vorum með í fyrri hálfleik,“ sagði Ísak að lokum. ÍR á leik framundan gegn Álftanesi á útivelli áður en tekið verður á móti ríkjandi bikarmeisturum Keflavíkur. ÍR er úr leik í bikarnum þetta tímabilið eftir tap gegn Val í 32-liða úrslitum síðasta sunnudag.
Bónus-deild karla ÍR Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ „Hans besti leikur“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjá meira