Þrjú og hálft ár fyrir að nauðga eigin dóttur Árni Sæberg skrifar 14. júlí 2022 13:42 Dómur í málinu var kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands eystra þann 1. júlí síðastliðinn. Vísir/Vilhelm Karlmaður var á dögunum dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar fyrir að nauðga dóttur sinni í malarnámu. Þá var hann dæmdur fyrir vörslu mikils magns barnaníðsefnis.
Maðurinn var ákærður í fjórum ákæruliðum fyrir kynferðislega áreitni, brot í nánu sambandi, kynferðisbrot og nauðgun. Dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra má lesa hér. Rétt er að vara við innihaldi hans. Hann neitaði sök í öllum ákæruliðum nema einum, þeim sem sneri að kynferðisbroti fyrir að hafa haft mikið magn barnaníðsefnis í vörslum sínum. Málsatvik voru þau að maðurinn kom á Akureyri að sækja dóttur sína sem þá gisti reglulega á Akureyri hjá föðurömmu sinni. Ætlunin var að dóttirin myndi dvelja hjá föður sínum í ótilgreindum bæ. Þau óku frá Akureyri í gegnum Vaðlaheiðargöng, því má leiða að því líkur að hann sé búsettur austan við Akureyri. Á leið heim til mannsins setti hann hönd sína á læri stúlkunnar og káfaði á kynfærum hennar utan klæða. Því næst stöðvaði hann bifreiðina eftir um tuttugu mínútna akstur í malarnámu, þar sem hann gekk lengra. Fyrst hafi hann þuklað á stúlkunni utanklæða um læri, klof og brjóst, en síðan farið inn fyrir fatnaðinn, káfað á brjóstum hennar og sett fingur inn í kynfæri hennar. Þá hafi hann þvingað hana til kossa við sig. Er heim til hans hafi verið komið hafi hann tekið utan um hana aftan frá og káfað á brjóstum hennar utan klæða, en hætt því er hún hafi sagt að sér væri óglatt. Þetta kom fram í skýrslutöku stúlkunnar hjá Lögreglunni á Akureyri. Félagar óku frá Reykjavík til að sækja stúlkuna Eftir að komið var heim til föðurins hafði stúlkan samband við vinkonu sína sem þá var á leið til Reykjavíkur ásamt kærasta sínum. Ákváðu þau að aka áleiðis til Reykjavíkur til að skila af sér samferðafólki sínu og þaðan rakleiðis aftur norður til að sækja stúlkuna. Ökumaðurinn bar fyrir dómi að stúlkan hafi verið í miklu uppnámi þegar hún ræddi við vinkonu hennar og hafi komið hlaupandi í bílinn þegar komið var heimili föðurins og setið grátandi í aftursæti bílsins á leiðinni til Akureyrar. Þegar komið var að lögreglustöðinni á Akureyri klukkan hálf sjö að morgni ræddi lögreglumaður við hana á meðan hún var enn í bílnum. Lögeglumaðurinn segir hana hafa verið í sýnilegri geðshræringu, í hnipri með teppi breitt yfir sig og helst viljað segja sögu sína stuttlega þarna í bifreiðinni og leita ráðlegginga án þess að koma inn á lögreglustöðina. Hafi hugsanlega óvart káfað á dóttur sinni Sem áður segir neitaði maðurinn að hafa brotið gegn dóttur sinni en hann sagðist hafa lagt höndina á læri hennar á leiðinni heim til hans. Það gerði hann af gömlum vana enda gerði hann það ávallt þegar hann æki með eiginkonu sinni. Hann kannaðist ekki við að hafa snert kynfæri stúlkunnar utanklæða en hafi það gerst hafi það verið fyrir slysni. Þá segist hann hafa tekið utan um dóttur sína aftan frá þegar á heimili hans var komið en það hafi einungis verið faðmlag. Hafi hann snert brjóst hennar hafi það einnig verið óvart. Mátti vera ljóst að dóttir hans vildi ekki stunda með honum kynlíf Í niðurstöðukafla dómsins segir að þau brot sem manninum var gefið að sök hafi réttilega verið heimfærð til refsiákvæða. Óumdeilt hafi verið að um kynferðislega áreitni, brot í nánu sambandim, og kynferðisbrot hafi verið að ræða. Hvort um nauðgun hafi verið að ræða var málum blandið enda sagðist stúlkan sjálf hafa farið úr fötunum að neðan og sagt já þegar faðir hennar spurði hvort hann mætti snerta á henni kynfærin. Hún hafi ekki þorað neinu öðru enda hafi þetta verið faðir hennar. Dómurinn leit svo á að kynferðislegar athafnir mannsins hafi verið þvert á vilja stúlkunnar og því nauðgun. Þá hafi honum átt að vera ljóst að dóttir hans vildi ekki stunda með honum kynlíf. „Þvert á móti bar honum við þessar aðstæður, úr því hann ákvað að fylgja eftir þeim annarlegu hvötum sínum að eiga kynferðismök við dóttur sína, að ganga ríkt eftir því að skýrt og ótvírætt samþykki lægi fyrir,“ segir í dóminum. Ótrúverðug frásögn föðurins Í niðurstöðu dómsins segir að frásögn stúlkunnar hafi verið stöðug og trúverðug allt frá því að hún tilkynnti brotin daginn eftir að þau voru framin. Frásögn föðurins hafi á hinn bóginn verið ótrúverðug, sér í lagi vegna þess að hann sagði við lögreglumenn sem handtóku hann daginn eftir að brot hans voru framin að hann hefði kannski óvart „farið með höndina í klofið“ á dóttur sinni. Lögreglumennirnir höfðu ekki sagt honum hvers vegna hann væri handtekinn. Með vísan til þess var það mat dómsins að ákæruvaldinu hefði tekist að sanna að maðurinn hefði gerst sekur um þau brot sem hann var ákærður fyrir. Sem áður segir var maðurinn dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Þá var hann dæmdur til að greiða dóttur sinni 2,9 milljónir króna í miskabætur auk málsvarnalauna skipaðs verjanda síns, 1,1 milljón króna, þóknun skipaðs réttargæslumanns dótturinnar, 950 þúsund krónur og 700 þúsund krónur í annan sakarkostnað. Dóm Héraðsdóms Norðurlands eystra má lesa hér. Rétt er að vara við innihaldi hans.
Kynferðisofbeldi Dómsmál Akureyri Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira