Tvö ný smit á milli daga Kjartan Kjartansson skrifar 20. apríl 2020 13:04 Tekin hafa verið fleiri en 40.000 sýni vegna kórónveirunnar til þessa. Vísir/Vilhelm
Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum eru nú alls 1.773 hér á landi. Staðfestum smitum fjölgaði því um tvö milli daga. Alls eru nú 28 innlagðir á sjúkrahús og fjórir á gjörgæslu vegna Covid-19. Þá hafa 1.362 náð bata. 1.109 einstaklingar eru í sóttkví og 402 í einangrun. 18.129 hafa lokið sóttkví. Tekin hafa verið 43.143 sýni. Níu eru sagðir hafa látist af völdum Covid-19 á vefsíðunni. Í yfirlýsingu frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í dag kom hins vegar fram að kona á níræðisaldri hefði látist á hjúkrunarheimilinu Bergi. Það er þá tíunda dauðsfallið af völdum veirunnar á Íslandi. Klukkan tvö verður haldinn upplýsingafundur almannavarna og landlæknis þar sem farið verður yfir stöðu mála í sambandi við faraldurinn og farið yfir aðgerðir til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, og Alma D. Möller, landlæknir, munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, og Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands sem starfar í Vestmannaeyjum verða gestir fundarins. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Sjá meira