Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Agnar Már Másson skrifar 24. júlí 2026 19:24 Stefanía Ragnarsdóttir sérfræðingur hjá Netvís. Vísir/Ívar Umferð netþjarka, eða svokallaðra „botta“, á samfélagsmiðlum hefur aukist verulega á síðustu árum. Netöryggismiðstöð Íslands brýnir fyrir fólki að vera á varðbergi í aðdraganda atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, þar sem samfélagsmiðlareikningar sem gefa sig út fyrir að vera alvöru fólk gætu reynst bottar. Almenningur er hvattur til að tilkynna það þegar þau telja sig rekast á botta.
Í maí vöktu svokallaðir „Viðreisnarbottar“ nokkra athygli en það virðist vera hjörð netþjarka sem birtist í ummælakerfi undir Facebook-færslu forstjóra Vélags – þar sem þeir gagnrýndu forstjórann á bjagaðri íslensku og hlóðu jafnframt lofi yfir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formann Viðreisnar. Ráðherrann hefur svarið af sér allar tengingar við bottana og sagði flokkinn hafa kært málið til lögreglu. Umferð þjarka á netinu hefur aukist verulega á síðustu árum og bandaríska netöryggisfyrirtækið CloudFare metur að meira en þriðjungur allrar netumferðar í heiminum sé nú af völdum þjarka. Netvís, netöryggismiðstöð Íslands, hefur nú lagt í herferð til að vekja almenning til vitundar um upplýsingaóreiðu á netinu í aðdraganda atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið í ágúst – meðal annars hvað varðar svokallaða botta. „Við höfum hvatt til þess að fólk sé meðvitað um að það gæti rekist á botta á netinu – bottar sem eru sjálfvirk tölvuforrit, sem taka jafnvel þátt í umræðum, setja læk á færslur, skrifa athugasemdir og annað slíkt.“ Netvís átti fyrr á árinu fund með fulltrúum Meta og TikTok um málið og hefur nú opnað sérstakan vef um upplýsingaóreiðu. Þar eru samfélagsmiðlanotendur hvattir til að tilkynna reikninga sem þeir gruna vera botta. Netvís hefur borist einhver fjöldi tilkynninga en ekkert í frásögur færandi, að mati Stefaníu. Hvernig ber maður þá kennsl á botta? Stefanía segir að oft sé gott að athuga hvort aðgangurinn sé nýstofnaður. „Það gæti gefið til kynna að þetta sé ekki aðgangur sem hefur verið á samfélagsmiðlum í mörg ár heldur mögulega botti sem hefur verið stofnaður til að taka þátt í tiltekinni umræðu,“ bætir hún við. Það kann einnig að vekja grunnsemd ef samfélagsmiðlaaðgangurinn er með fáa vini og birtir afar margar færslur um tiltekið málefni á skömmum tíma. En til hvers er fólk að búa til botta? Stefanía svarar að ásetningurinn geti verið fjölbreyttur. „Stundum getur það verið bara að ýta undir ákveðin sjónarmið eða draga úr stuðningi við sjónarmið. Stundum til að draga úr trausti til ákveðinna aðila. Svo geta bottar líka verið notaðir til að ýta undir ágreining og lita samfélagsumræðuna á þann hátt,“ segir hún að lokum.
Tækni Netöryggi Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira