Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. júlí 2026 13:29 Björgólfur Thor Björgólfsson er farinn til Ítalíu og Novator til Sviss. Vísir/Vilhelm Björgólfur Thor Björgólfsson hefur flutt skattalegt heimilisfesti sitt frá Bretlandi til Ítalíu vegna breytinga sem hafa verið gerðar á bresku skattkerfi. Hann þyrfti nú að greiða skatt á tekjum sem hann aflar sér utan Bretlands.
Hann var til viðtals hjá Bloomberg í kjölfar þess að hann flutti heimilisfesti sitt til Ítalíu og færði fjárfestingafyrirtæki sitt Novator til Zuerich frá Lundúnum. Tuttugu starfsmenn misstu vinnuna í Lundúnum. Auðmenn hrannist yfir Ermarsund Björgólfur hefur sagt skilið við breskt viðskiptalíf eftir að stjórnvöld þar afnámu svokallað „non-dom“ skattakerfi sem gilt hafði um aldir fyrir efnafólk búsett í landinu án þess að teljast eiga þar lögheimili í skattalegum skilningi. „Það er landflótti,“ segir hann og er ómyrkur í máli um það sem hann telur afleiðingar breytinganna. Ekki sé um tilbúning fjölmiðla að ræða. Að hans mati hefðu bresk stjórnvöld frekar átt að taka upp flatan skatt með þaki á borð við þann sem tíðkast til dæmis á Ítalíu með, í stað þess að afnema kerfið með öllu. Þannig hefði mátt fá efnafólk til að greiða fyrirfram skatta til nokkurra ára í senn og tryggja ríkissjóði háar upphæðir strax í stað þess að missa tekjurnar með öllu þegar fólk flyst úr landi. „Það er ótrúlegt hversu hratt þetta hefur skeð. [Þ]að sem veldur mér áhyggjum er að ríkisstjórnin gerði mistök og áttaði sig á því,“ segir hann. Eignir metnar á 125 milljarða Björgólfur Thor er auðugasti Íslendingurinn og eru eigur hans metnar á um milljarð Bandaríkjadala, um 125 milljarða króna. Hann á hlut í svissneska lyfjafyrirtækinu Xantis og síleska fjarskiptafélaginu WOm sem var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2024. Safn fjárfestingarfélagsins hans Novator felur í sér hluti í netöryggisfyrirtækinu Nord Security, heilbrigðistæknifyrirtækinu Sidekick Health og bresku líftæknifyrirtæki sem þróar tilbúið erfðaefni. Björgólfur segist nú horfa mest til fjárfestingatækifæra á Indlandi og hafi sett flestar nýjar fjárfestingar á ís þar til leiðrétting verði á markaði sem hann telur bera keim af netbólunni fyrir aldamót.
Íslendingar erlendis Bretland Ítalía Sviss Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Sjá meira