Innlent

Báti var siglt yfir kajakræðara

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slys þar sem báti hafði verið siglt yfir kajakræðara. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og á Seltjarnarnesi. Betur fór en á horfðist og slapp kajakræðarinn ómeiddur.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá lögreglu um verkefni dagsins. Einn sé vistaður í fangageymslu. 

Einnig hafði lögregla afskipti af ökumönnum, ýmist fyrir hraðaakstur, notkun farsíma undir stýri eða akstur yfir á rauðu ljósi. Málin hafi verið afgreidd samkvæmt venju. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×