Úr búskap yfir í Íslandsmeistaraliðs Vals Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. júní 2020 15:45 Bryndís Lára ver hér frá Fanndísi Friðriksdóttur, leikmanni Vals, en þær verða samherjar í sumar. Vísir/Bára Dröfn Kristinsdóttir
Ríkjandi Íslandsmeistarar Vals í fótbolta hafa sótt sér markvörð sem varð Íslandsmeistari fyrir þremur árum síðan. Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir er gengin til liðs við Val í Pepsi Max deild kvenna. Bryndís Lára hefur varið mark Þórs/KA undanfarin ár og varð til að mynda Íslandsmeistari með liðinu sumarið 2017. Bryndís Lára lék aðeins þrettán deildarleiki á síðustu leiktíð vegna þrálátra meiðsla í baki. Þá hafði hún áður hætt í fótbolta og ætlaði að einbeita sér að spjótkasti. Í vetur færðist áhugasviðið frá fótbolta og spjótkasti yfir í búskap. Hefur hún því lítið æft og aðallega einbeitt sér að lömbum og folöldum. Íslandsmeistararnir lánuðu hina ungu Auði Sveinbjörnsdóttur Scheving til ÍBV og því vantaði liðinu aukna samkeppni þó svo að liðið sé vel búið að markvörðum sem eru í yngri landsliðum Íslands. Nú hefur Bryndís ákveðið að taka slaginn með Val og vera Söndru Sigurðardóttur til halds og trausts. Bryndís fékk eldskírn sína í efstu deild með Breiðablik árið 2011 en hefur síðan varið mark ÍBV og Þórs/KA. Hún mun ekki æfa á fullu með Val þar sem hún verður áfram búsett á Kúfhól í Austur-Landeyjum. „Ég bý á Kúfhól og verð hér í sumar. Fer í bæinn þegar ég get en fer hægt af stað vegna meiðslanna sem eru samt betri en í fyrra,“ sagði Bryndís í stuttu spjalli við Vísi. Alls hefur Bryndís leikið 169 leiki í deild og bikar ásamt því að hafa leikið einu sinni fyrir íslenska landsliðið. Pepsi Max deild kvenna fer af stað 12. júní með stórleik Vals og KR að Hlíðarenda. Að sjálfsögðu í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild kvenna Valur Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira