Morales biðlar til Sameinuðu þjóðanna Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 15. nóvember 2019 18:15 Morales, sem hefur sakað herinn um valdarán, sagði að þar sem þingið hefur ekki formlega staðfest né hafnað afsögn hans sé hann enn réttmætur forseti landsins. Vísir/AP
Evo Morales kallar eftir því að Sameinuðu þjóðirnar og kaþólska kirkjan miðli málum í Bólivíu eftir að her landsins knúði hann til þess að segja af sér sem forseti um síðustu helgi. Stjórnarandstæðingar höfðu mótmælt af hörku dagana fyrir afsögn Morales og sökuðu hann um að hafa stolið sigrinum í nýliðnum forsetakosningum. Einnig gagnrýnt ákvörðun hæstaréttar um að heimila framboðið þrátt fyrir að tillaga um að afnema hámarksfjölda kjörtímabila var felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. Um helgina tóku bæði lögregla og herinn afstöðu með stjórnarandstöðunni og tilkynnti þessi fyrsti forseti Bólivíu af frumbyggjaættum því um afsögn sína eftir þrettán ár á valdastóli. Deilunni er hins vegar hvergi nærri lokið þrátt fyrir að Jeanine Anez hafi lýst því yfir að hún hafi tekið við sem starfandi forseti. Stuðningsmenn sósíalistans Morales hafa safnast saman úti á götum bólivískra borga og veifað fána innfæddra. Morales sagðist í nótt viss um að Sameinuðu þjóðirnar gætu miðlað málum. Forsetinn, sem hefur sakað herinn um valdarán, sagði að þar sem þingið hefur ekki formlega staðfest né hafnað afsögn hans sé hann enn réttmætur forseti landsins. „Við munum endurreisa lýðræðið. Það verður þolinmæðisvinna sem krefst friðsamlegrar baráttu. Við verðum að koma á friði í Bólivíu. Ef ég verð að gagni í þeirri baráttu mun ég taka þátt, en án vopna.“
Bólivía Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira