Gagnrýnir málflutning Demókrata Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 31. maí 2019 08:30 Donald Trump, forseti Banda- ríkjanna. Nordicphotos/AFP
Það er ógeðslegt að tala um að ákæra forsetann til embættismissis og í því felst gríðarlegt áreiti. Þetta sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, við blaðamenn á lóð Hvíta hússins í gær er hann var inntur eftir viðbrögðum við tali ýmissa Demókrata í neðri deild þingsins um að gefa út slíka ákæru. Umræðan um ákæru til embættismissis á hendur Trump hefur tekið kipp eftir að Robert Mueller, sérstakur saksóknari í Rússamálinu, hélt blaðamannafund á miðvikudag. Þar greindi Mueller frá því að starfi hans væri lokið og tók fram að þótt ekki hafi tekist að sýna fram á að Trump hafi hindrað framgang réttvísinnar hafi ekki verið hægt að sýna fram á sakleysi hans heldur. Þótt ýmsir Demókratar hafi lýst því yfir að þeim finnist rétt að ákæra forsetann hefur Nancy Pelosi þingforseti ekki tekið afgerandi afstöðu í málinu enn sem komið er. Hefur þó vissulega sagt að allir möguleikar séu enn opnir. Verði Trump ákærður er hins vegar ekki ljóst að hann missi sæti sitt. Það er öldungadeildin sem dæmir í málinu og þurfa 67 þingmenn af 100 að greiða atkvæði með sakfellingu. Repúblikanar eru með 53 sæti og ólíklegt verður að teljast að nógu margir snúi baki við forsetanum að öllu óbreyttu.
Bandaríkin Birtist í Fréttablaðinu Donald Trump Rússarannsóknin Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira