Sviptingar í ríkisstjórakosningum Kjartan Kjartansson skrifar 7. nóvember 2018 09:36 Stacey Abrams ætlar ekki að leggja árar í bát í ríkisstjórakosningunum í Georgíu þrátt fyrir að andstæðingur hennar hafi verið með forskot í talningu í nótt. Úrslitin þar gætu ráðist í aukakosningum. Vísir/EPA
Útlit er fyrir að harður slagur um ríkisstjórastólinn í Georgíu dragist á langinn. Frambjóðandi demókrata segist ekki tilbúinn að viðurkenna ósigur ennþá en kosningabaráttan hefur einkennst af ásökunum um svik á báða bóga. Demókratar töpuðu ríkisstjórakosningu á Flórída sem hafði vakið mikla athygli en unnu óvæntan sigur gegn umdeildum ríkisstjóra repúblikana í Wisconsin. Kosningabaráttan í Georgíu hefur verið sérstaklega hörð en í henni takast á þau Stacey Abrams, frambjóðandi demókrata, og Brian Kemp, frambjóðandi repúblikana sem einnig er innanríkisráðherra ríkisins og æðsti embættismaður þess sem hefur með framkvæmd kosninga að gera. Þrátt fyrir að Kemp sé með forskot þegar stærsti hluti atkvæða hefur verið talinn segist Abrams ekki ætla að leggja árar í bát. Hún vill bíða þar til öll utankjörfundar- og bráðabrigðaatkvæði hafa verið talin. Litlu munar á að Kemp fari niður fyrir helming atkvæða og þyrfti þá að halda aukakosningu á milli þeirra Abrams. Kemp segir hins vegar að „sigurinn sé nærri“. Demókratar hafa sakað Kemp um að beita bellibrögðum til að koma í veg fyrir að kjósendur þeirra gætu greitt atkvæði. Í tíð hans hefur Georgía samþykkt strangar reglur um að upplýsingar um kjósendur, þar á meðal nöfn og heimilisföng þeirra, séu nákvæmlega samhljóða öðrum skrám ríkisins. Þá hóf Kemp rannsókn á meintri tilraun demókrata til þess að brjótast inn í kosningakerfi ríkisins, aðeins örfáum dögum fyrir kosningarnar. Demókratar höfnuðu þeim ásökunum algerlega og sökuðu Kemp um hráslagaleik.Andew Gillum viðurkenndi ósigur í nótt. Hann hafði virst eiga góða möguleika á að verða fyrsti svarti ríkisstjóri Flórída.Vísir/EPAVonarstjarna demókrata á Flórída tapaði Abrams er ein þriggja frambjóðenda demókrata sem áttu möguleika á að verða fyrsti svarti ríkisstjóri sinna ríkja. Hinir tveir hafa þegar beðið ósigur. Skoðanakannanir höfðu bent til þess að Andrew Gillum, borgarstjóri Tallahassee, myndi ná kjöri sem ríkisstjóri Flórída. Andstæðingur hans, repúblikaninn Ron DeSantis, fór hins vegar með sigur af hólmi. Repúblikanar hafa nú haldið ríkisstjórastólnum á Flórída í tuttugu ár. DeSantis er mikill aðdáandi Trump forseta. Hann vakti neikvæða athygli á sér þegar hann lét hafa eftir sér að kjósendur ættu ekki að „apa upp“ kosningunum. Gillum sagði síðar í kappræðum þeirra að hann héldi því ekki fram að DeSantis væri rasisti en að rasistar litu á hann sem einn af þeim. Gillum hafði vakið mikla athygli í kosningabaráttunni og var byrjað að ræða um hann sem mögulega vonarstjörnu demókrata, jafnvel fyrir forsetakosningarnar árið 2020. Í Maryland laut Ben Jealous í gras fyrir Larry Hogan, frambjóðanda repúblikana.Scott Walker beitti sér hart gegn verkalýðsfélögum sem ríkisstjóri. Hann bauð sig einnig fram í forvali repúblikana fyrir forsetakosningarnar árið 2016 en komst lítt áleiðis.Vísir/EPAWalker felldur í Wisconsin Alls var kosið til ríkisstjóra í 36 ríkjum og yfirráðasvæðum Bandaríkjanna. Þrátt fyrir að repúblikanir verði líklega áfram með fleiri ríkisstjórastóla bendir flest til þess að þeir ríkisstjórar demókratar sem ná kjöri ríki yfir meirihluta íbúa Bandaríkjanna. Þrátt fyrir vonbrigði í ríkjum eins og Flórída og Georgíu voru úrslitin ekki alls staðar vonbrigði fyrir demókrata. Þannig náðu þeir að fella Scott Walker, ríkisstjóra Wisconsin og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Tony Evers, frambjóðandi demókrata vann nauman sigur í ríkinu þar sem Donald Trump forseti marði sigur á Hillary Clinton í forsetakosningunum árið 2016. Walker náði fyrst kjöri árið 2010 en niðurskurður og aðgerðir gegn verkalýðsfélögum bökuðu honum óvinsældir. Demókratar reyndu að ógilda kjör hans árið 2012 en án árangurs. Í Kansas virðist Kris Kobach, frambjóðandi repúblikana og harðlínumaður í innflytjendamálum, hafa beðið ósigur gegn Lauru Kelly, frambjóðanda demókrata. Kobach stýrði meðal annars nefnd sem Trump forseti setti á fót í fyrra til að rannsaka kosningasvindl í Bandaríkjunum sem forsetinn hafði fullyrt að væru tíð. Nefndin var hins vegar leyst upp án þess að hún kæmist að neinum niðurstöðum.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Tengdar fréttir Frambjóðendur hliðhollir Trump treystu meirihluta repúblikana í öldungadeildinni Útlit er fyrir að repúblikanar bæti við sig þremur sætum í öldungadeildinni. Þingmenn demókrata sem vörðu sæti í ríkjum sem halla sér að Trump töpuðu. 7. nóvember 2018 08:38 Útlit fyrir miklar deilur næstu tvö árin Repúblikanaflokkurinn hefur bætt við nauman meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings og Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í fulltrúadeildinni. 7. nóvember 2018 05:45 Ted Cruz hafði betur gegn vonarstjörnu Demókrata Repúblikaninn Ted Cruz hafði betur gegn einni helstu vonarstjörnu Demókrata, Beto O'Rourke, í kosningunum til öldungadeildarinnar í Texas í nótt. 7. nóvember 2018 08:40 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Frambjóðendur hliðhollir Trump treystu meirihluta repúblikana í öldungadeildinni Útlit er fyrir að repúblikanar bæti við sig þremur sætum í öldungadeildinni. Þingmenn demókrata sem vörðu sæti í ríkjum sem halla sér að Trump töpuðu. 7. nóvember 2018 08:38
Útlit fyrir miklar deilur næstu tvö árin Repúblikanaflokkurinn hefur bætt við nauman meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings og Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í fulltrúadeildinni. 7. nóvember 2018 05:45
Ted Cruz hafði betur gegn vonarstjörnu Demókrata Repúblikaninn Ted Cruz hafði betur gegn einni helstu vonarstjörnu Demókrata, Beto O'Rourke, í kosningunum til öldungadeildarinnar í Texas í nótt. 7. nóvember 2018 08:40