„Hundrað prósent“ viss um að Kavanaugh hafi reynt að nauðga henni Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2018 18:30 Chrisstine Blasey Ford við upphaf nefndarfundarins. AP/Andrew Harnik
Christine Blasey Ford sagðist „hundrað prósent“ viss um að það hafi verið Brett Kavanaugh sem hafi reynt að nauðga henni fyrir 36 árum. Þá sagðist hún muna til þess að Kavanaugh og vinur hans Mark Judge hafi hlegið á meðan að á hinni meintu árás stóð. Frásögn hennar gæti komið í veg fyrir tilnefningu Kavanaugh til Hæstaréttar. Ford bar vitni fyrir dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag og mun Kavanaugh gera það einnig seinna í kvöld. Hann hefur neitað ásökunum minnst þriggja kvenna sem hafa sakað hann um kynferðisbrot. Ford sagði að Kavanaugh hefði haldið henni niðri, haldið hendi sinni yfir munni hennar og reynt að klæða hana úr fötunum þegar þau voru í samkvæmi árið 1982, þegar þau voru í menntaskóla. Judge segist ekki muna eftir atvikinu en að öðru leyti hefur hann neitað að tjá sig og hann neitaði einnig að mæta fyrir þingnefndina. Ford sagði enga pólitíska ástæðu fyrir því að hún hafi stigið fram og rifjað upp atvikið, eins og fjölmargir Repúblikanar og þar á meðal Donald Trump, forseti, hafa haldið fram. Til stendur að kjósa um tilnefningu Kavanaugh á morgun en ekki liggur fyrir hvaða áhrif fundurinn í dag og vitnisburður Ford og Kavanaugh mun hafa. Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins hafa lýst yfir að þeir séu óvissir um hvort þeir muni veita Kavanaugh atkvæði sitt en meirihluti Repúblikana er mjög naumur á öldungadeildinni, 51-49. Þar að auki hafa Repúblikanar sagt við fjölmiðla ytra í dag, á meðan á fundinum stendur, að svo virðist sem að saga Ford muni koma verulega niður á tilnefningu Kavanaugh. Washington Post segir Bandaríkjamenn um allt land fylgjast með fundinum af miklum áhuga.Vildi ekki stíga fram í fyrstuRepúblikanar í nefndinni sem eru ellefu og allir karlmenn réðu saksóknarann Rachel Mitchell til að spyrja Ford spurninga og byrjaði hún á því að lýsa yfir vorkunn með Ford. Áður hafði Charles E. Grassley, formaður nefndarinnar, fordæmt morðhótanir sem bæði Ford og Kavanaugh hafa fengið en hann fordæmdi sömuleiðis hvernig Demókratar hefðu meðhöndlað ásakanir Ford. Ford hafði aldrei ætlað að stíga fram opinberlega en hún var í raun dregin fram í sviðsljósið þegar bréf hennar til Dianne Feinstein, æðsta Demókratans í nefndinni var opinberað. Þar sagði hún fyrst frá hinni meintu árás. Þá sagði Grassley að Demókratar hefðu neitað að starfa með Repúblikönum við rannsókn ásakana gagnvart Ford. Þegar Ford hóf mál sitt var ljóst að henni þótti erfitt að vera á nefndarfundinum og sagðist hún ekki vilja vera stödd þarna. Hún sagðist ekki hafa svör við öllum spurningum og hún mundi ekki eins mikið frá umræddu kvöldi og hún vildi. Hins vegar myndi hún aldrei gleyma lykilatriðunum. Hún talaði um samkvæmið og nefndi hún aðra sem hún sagði hafa verið þar.Óttaðist um líf sitt Ford lýsti sömuleiðis árásinni og sagði þá Kavanaugh og Judge hafa læst herberginu sem þau voru í og hækkað í tónlistinni sem var verið að spila þar. Þá hafi hann reynt að nauðga henni en henni hafi tekist að flýja úr herberginu. „Ég var sannfærð um að hann ætlaði að nauðga mér,“ sagði Ford. Hún sagðist svo hafa óttast um líf sitt. Hún var fimmtán ára á þessum tíma og segist ekki hafa þorað að segja foreldrum sínum frá árásinni. „Ég sannfærði sjálfa mig um að þar sem Brett hefði ekki nauðgað mér, ætti ég bara að líta fram hjá þessu.“ Þá sagðist Ford ekki hafa viljað koma fram og að hún hefði óttast að ásakanir hennar myndu hverfa í hafi stuðningsmanna Kavanaugh. Hún fór einnig yfir viðbrögðin við ásökununum og sagðist ekki hafa átt von á því að þau yrðu eins slæm og raunin varð. Fjölskylda hennar hefur þurft að flýja heimili þeirra vegna hótana.
Bandaríkin Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Tengdar fréttir Tekist á um fjórðu ásakanirnar í garð Kavanaugh Dómsmálanefnd öldungardeildar Bandaríkjaþings spurðist fyrir um enn einar ásakanir í garð Brett Kavanaugh eftir að nafnlaust bréf barst þingmanni þess efnis að hæstaréttardómaraefnið hefði kynferðislega áreitt konu í Washington árið 1998. 27. september 2018 08:48 Svarar Trump með frásögn af nauðgun, skömm og þöggun Bandaríska sjónvarpskonan Padma Lakshmi greinir frá því hvers vegna hún tilkynnti ekki um það þegar henni var nauðgað á unglingsárunum í pistli sem birtist í dagblaðinu New York Times í morgun. 26. september 2018 07:17 Eins og í Twilight Zone segir Kavanaugh um ásakanir þriðju konunnar Þriðja konan hefur nú stigið fram og sakað Brett Kavanaugh, hæstaréttardómaraefni Bandaríkjaforseta, um kynferðislegt ofbeldi. Kavanaugh segir að ásakanir hennar séu fjarstæðukenndar. 26. september 2018 21:00 Kavanaugh og Ford mæta til yfirheyrslna í öldungadeildinni í dag Dómsmálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins fundar í dag. 27. september 2018 06:30 „Ég er dauðhrædd“ „Ég er ekki hér í dag vegna þess að ég vill það. Ég er dauðhrædd,“ er meðal þess sem Christine Blasey Ford mun segja er hún les yfirlýsingu fyrir framan dómsmálanefnd öldungardeildar Bandaríkjaþings á morgun. 26. september 2018 23:15 Mest lesið Fékk sex milljónum of há laun og neitaði að endurgreiða þau Innlent Vann skemmdir á golfvelli og skildi eftir smokk Innlent Þjóðhátíð í Eyjum: Farþegafjöldi í Herjólfi komi á óvart Innlent Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Innlent Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Erlent Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ Innlent Annasamt ár á Bessastöðum: Kóngafólk, keisari, umtöluð undirskrift og brúnir skór Innlent Þyrlan farin vestur í hvítabjarnareftirlit Innlent Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Erlent Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Erlent Fleiri fréttir „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Létu sprengjum rigna á Kænugarð Segja 30 hafa látist í skotárás Ísraelshers við dreifingu neyðargagna Kanada í hóp þeirra sem hyggjast viðurkenna sjálfstæði Palestínu Sjö dáið úr hungri síðasta sólarhringinn Rannsaka tengsl þyngdarstjórnunarlyfja við bráða brisbólgu Gargaði á flokksfélaga sína Fyrsta ástralska geimflaugin flaug í fjórtán sekúndur Maxwell vill friðhelgi fyrir vitnisburðinn Vill greiða sex milljarða tryggingu til að losna úr haldi Pokrovsk riðar til falls 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir „Hann stal henni“ Bretar hyggjast viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki Sjá meira
Tekist á um fjórðu ásakanirnar í garð Kavanaugh Dómsmálanefnd öldungardeildar Bandaríkjaþings spurðist fyrir um enn einar ásakanir í garð Brett Kavanaugh eftir að nafnlaust bréf barst þingmanni þess efnis að hæstaréttardómaraefnið hefði kynferðislega áreitt konu í Washington árið 1998. 27. september 2018 08:48
Svarar Trump með frásögn af nauðgun, skömm og þöggun Bandaríska sjónvarpskonan Padma Lakshmi greinir frá því hvers vegna hún tilkynnti ekki um það þegar henni var nauðgað á unglingsárunum í pistli sem birtist í dagblaðinu New York Times í morgun. 26. september 2018 07:17
Eins og í Twilight Zone segir Kavanaugh um ásakanir þriðju konunnar Þriðja konan hefur nú stigið fram og sakað Brett Kavanaugh, hæstaréttardómaraefni Bandaríkjaforseta, um kynferðislegt ofbeldi. Kavanaugh segir að ásakanir hennar séu fjarstæðukenndar. 26. september 2018 21:00
Kavanaugh og Ford mæta til yfirheyrslna í öldungadeildinni í dag Dómsmálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins fundar í dag. 27. september 2018 06:30
„Ég er dauðhrædd“ „Ég er ekki hér í dag vegna þess að ég vill það. Ég er dauðhrædd,“ er meðal þess sem Christine Blasey Ford mun segja er hún les yfirlýsingu fyrir framan dómsmálanefnd öldungardeildar Bandaríkjaþings á morgun. 26. september 2018 23:15