Grunaður hryðjuverkamaður flúði úr dönsku fangelsi eftir að hafa þóst vera gestur Atli Ísleifsson skrifar 3. ágúst 2018 13:28 Lestarumferð stöðvaðist um tíma í Kaupmannahöfn þegar lögregla leitaði strokufangans, auk þess að aðallestarstöð borgarinnar var rýmd. Vísir/EPA
Meirihluti er fyrir því á danska þinginu að herða eftirlit með gæsluvarðhaldsföngum eftir að grunuðum hryðjuverkamanni tókst að flýja úr gæsluvarðhaldi í Vestre fangelsinu í Kaupmannahöfn í gær. Fanginn, sem Ekstrabladet segir vera 46 ára Sýrlending, yfirgaf fangelsið þegar hann þóttist vera gestur sem hafði heimsótt hann. Maðurinn sem hafði heimsótt fangann þóttist á móti vera fanginn. Fanginn ku vera með stöðu grunaðs í umfangsmikilli hryðjuverkarannsókn ítölsku lögreglunnar. Hann hefur verið í dönsku fangelsi síðan í janúar og stóð til að framselja hann til Ítalíu.Beri einkenniskort Fangelsismálastofnun Danmerkur hefur nú lagt til að öllum gæsluvarðhaldsföngum verði gert að bera einkenniskort, sambærilegum þeim sem fangar sem afplána dóm bera. Sömuleiðis á fólk sem heimsækir fanga ekki að geta yfirgefið fangelsið fyrr en fanginn er kominn aftur í fangaklefa sinn. Í frétt DR kemur fram að meirihluti sé fyrir tillögunni á danska þinginu. Lögreglu hefur enn ekki tekist að hafa hendur í hári fangans sem slapp. Lestarumferð stöðvaðist um tíma í Kaupmannahöfn þegar lögregla leitaði strokufangans, auk þess að aðallestarstöð borgarinnar var rýmd.
Norðurlönd Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Sjá meira