Kveikt í dönskum leikskóla eftir kynferðisbrotamál Atli Ísleifsson skrifar 31. janúar 2018 11:19 Lögregla útilokar ekki að um íkveikju hafi verið að ræða. Vísir/Getty
Leikskóli í Høje-Taastrup, fyrir utan Kaupmannahöfn, er mikið skemmdur eftir að eldur kom þar upp í nótt. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða en upp komst í síðustu viku að fjórtán ára drengur, sem var þar í starfsnámi, hafi viðurkennt að hafa brotið gegn fimm stúlkum á leikskólanum. „Við getum ekki útilokað að um íkveikju hafi verið að ræða,“ segir Søren Enemark, talsmaður dönsku lögreglunnar. Margir foreldra leikskólabarna hafa beint reiði sinni að leikskólanum eftir að fréttir tóku að berast um brotin í síðustu viku. Michael Ziegler, borgarstjóri Høje-Taastrup, ákvað í kjölfarið að ráða öryggisvörð til að gæta öryggis starfsmanna leikskólans. Til stendur að um fimmtíu börn við leikskólann fái nú pláss á öðrum leikskólum í sveitarfélaginu. Fjórtán ára drengurinn hafði fengið tímabundna stöðu á leikskólanum í gegnum verkefni ætluðu börnum sem væru við það að flosna upp úr skóla. Hann hafði starfað á leikskólanum í hálft ár og er nú í umsjá félagsmálayfirvalda hjá sveitarfélaginu.
Norðurlönd Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Fleiri fréttir Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Sjá meira