Fundu blóð úr norskri konu sem saknað er Atli Ísleifsson skrifar 7. janúar 2018 13:44 Síðast sást til Janne Jemtland að morgni 29. desember síðastliðinn. Norska lögreglan/Getty
Lögregla í Noregi hefur staðfest að blóð sem fannst á jörðinni í norskum skógi í gær sé úr Janne Jemtland, 36 ára norskri konu sem hefur verið saknað síðan fyrir áramót. Aukinn þungi mun nú færast í leitina að konunni að því er fram kemur í frétt NRK. Mál Jemtland hefur vakið mikla athygli í Noregi en blóðið fannst á vegi í Brumunddal, um hundrað kílómetrum norður af höfuðborginni Ósló. Blóðsletturnar fundust í snjónum í kanti Lillehaugvegen en lögregla hefur lagt sérstaka áherslu á svæði í kringum hús við Ånnerudvegen í leitinni að Jemtland. Verið er að fínkemba svæðið í kringum húsið og hefur verið notast við dróna og leitarhunda. Húsið er um hundrað metra frá staðnum þar sem blóðsletturnar fundist í snjónum í gær.Var í jólaboði Janne Jemtland hefur verið saknað síðan 29. desember. Síðast sást til Jemtland á heimili hennar í Veldre um klukkan 2 að nóttu, 29. desember. Jemtland og eiginmaður hennar höfðu þá verið í jólaveislu og tekið leigubíl heim. Það var eiginmaður hennar sem tilkynnti um hvarf hennar þann 30. desember. Húsið, sem er nálægt staðnum þar sem blóðið fannst, er um ellefu kílómetrum frá heimili Jemtland í Veldre. Blóð úr Jemtland hafði einnig fundist síðasta fimmtudag, ekki langt frá staðnum þar sem blóð fannst í gær. Lögregla hefur yfirheyrt fjölda vina, nágranna og fjölskyldumeðlima Jemtland vegna hvarfsins. Síðustu merki úr síma hennar voru í Brumunddal, klukkan 5:50 sömu nótt og síðast sást til hennar.
Norðurlönd Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira