Sendi Trump-liðum skýr skilaboð Samúel Karl Ólason skrifar 31. október 2017 13:15 Robert Mueller. Vísir/Getty
Með fyrstu ákærunum og opinberunum sínum vegna Rússarannsóknarinnar svokölluðu, sendi Robert Mueller, sérstakur saksóknari dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, skýr skilaboð. Ef þið ljúgið að rannsakendum fáið þið að finna fyrir því. Hann sýndi einnig að hann getur og mun ákæra menn fyrir glæpi sem tengjast framboði Trump og forsetakosningunum ef til vill ekki með beinum hætti. Tveir menn, þeir Paul Manafort og Rick Gates, voru ákærðir í gær fyrir tólf glæpi. Þar á meðal fyrir samsæri gegn Bandaríkjunum, peningaþvætti og óskráð starf fyrir erlenda aðila. Sömuleiðis sendi saksóknarinn einnig sterk skilaboð með uppljóstrun sinni um játningu George Papadopoulos í október og samstarf hans með rannsakendum.Sjá einnig: Trump sagður rjúkandi reiður eftir ákærurnar Papadopoulus sem vann við framboð forsetans og var í reglulegum samskiptum við nána ráðgjafa Trump, gaf Mueller og rannsakendum hans fjölda tölvupósta af samskiptum þeirra og starfaði með rannsakendum í leyni um nokkuð skeið. Hann hafði verið í samskiptum við embættismenn í Rússlandi en var ekki ákærður fyrir það, heldur fyrir að ljúga að starfsmönnum Alríkislögreglu Bandaríkjanna um þau samskipti.„Ohh. Þeir gætu ekki hafa sent skýrari skilaboð ef þeir hefðu leigt stórt ljósaskilti á Times Square,“ sagði fyrrverandi saksóknarinn Patrick Cotter við Washington Post. „Skilaboðin eru ekki bara um Manafort. Þau eru til næstu fimm manna sem þeir munu tala við. Skilaboðin eru: Við erum á leiðinni, við erum ekki að grínast, okkur er alvara.“Yfirlit yfir fyrstu ákærur Mueller.Vísir/GraphicNewsÍ skjölum sem voru opinberuð í gær lýstu rannsakendur aðkomu Papadopoulus að málinu sem „smáum hluta umfangsmiklar rannsóknar,“ samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Í skjölunum kom einnig fram að þegar hann vann fyrir framboð Trump var honum tilkynnt í apríl í fyrra að Rússar byggju yfir upplýsingum um Hillary Clinton, mótframbjóðanda Trump, sem myndu koma niður á henni ef þær yrðu gerðar opinberar. Þetta var áður en í ljós kom að Rússar hefðu gert tölvuárásir og brotið sér leið inn í tölvukerfi Landsnefndar Demókrataflokksins. Stór hluti þeirra tölvupósta var svo birtur á vef Wikileaks í aðdraganda kosninganna. Papadopoulos sagði rannsakendum þó að hann hefði ekki sagt öðrum starfsmönnum framboðsins frá hinum meintu upplýsingum.Tryggði stöðu sína Þá hefur Mueller einnig tryggt stöðu sína í sessi og gert Trump og bandamönnum hans erfiðara að stöðva rannsóknina. Fyrrverandi saksóknari sem ræddi við Politico segir að enginn geti lengur sagt að rannsókn Mueller séu tilhæfulausar nornaveiðar, eins og Donald Trump hefur haldið fram frá því að rannsóknin hófst. Mueller var skipaður sérstakur saksóknari af dómsmálaráðuneytinu eftir að Donald Trump viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að hann hefði rekið James Comey, fyrrverandi yfirmann Alríkislögreglunnar, vegna rannsóknar stofnunarinnar á afskiptum Rússa af kosningunum og mögulegri aðkomu framboðs Trump af þeim afskiptum. Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hafði sagt sig frá öllu sem við kom rannsókninni eftir að í ljós kom að hann hefði sagt ósatt um samskipti sín við Sergei Kislyak, fyrrverandi sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum.Sjá einnig: Sessions fundaði tvisvar með sendiherra RússlandsEinhverjir bandamenn Trump, og þar á meðal Stephen Bannon, hafa samkvæmt Politco stungið upp á því að forsetinn grafi undan rannsókn Mueller með því að koma í draga úr fjárveitingum til hennar. Trump hefur ítrekað veist að Mueller og rannsókn hans og undanfarna daga hefur forsetinn haldið því fram að réttast væri að rannsaka Demókrataflokkinn og Hillary Clinton. Nú í dag tísti Trump um málið þar sem hann sagði „falska fjölmiðla“ vera að vinna yfirvinnu. Hann sagði allar ákærurnar gegn Manafort snúast að atvikum sem hefðu átt sér stað fyrir kosningarnar og Manafort fór að vinna hjá Trump. Þá segir forsetinn að fáir hafi þekkt hinn unga sjálfboðaliða sem heiti George [Papadopoulos] og að hann væri lygari. Trump endar svo tístin tvö á: „Skoðið DEMÓKRATANA!“. Hann bætti svo þriðja tístinu við og sagðist vonast til þess að fólk myndi einbeita sér að skattalækkunum og spillingu meðal demókrata.The Fake News is working overtime. As Paul Manaforts lawyer said, there was "no collusion" and events mentioned took place long before he...— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 31, 2017 ....came to the campaign. Few people knew the young, low level volunteer named George, who has already proven to be a liar. Check the DEMS!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 31, 2017 I hope people will start to focus on our Massive Tax Cuts for Business (jobs) and the Middle Class (in addition to Democrat corruption)!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 31, 2017
Bandaríkin Donald Trump Rússarannsóknin Tengdar fréttir Manafort ákærður fyrir samsæri gegn Bandaríkjunum og peningaþvætti Ekkert sem varðar forsetaframboð Donalds Trump kemur fram í fyrstu ákærunni sem er gefin út í rannsókn á afskiptum Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum í fyrra. 30. október 2017 13:48 Hlakkar í þáttastjórnendum: „It's Mueller time“ Stjórnendur kvöldþátta í Bandaríkjunum fóru yfir nýjustu vendingar Rússarannsóknarinnar svokölluðu í gær. 31. október 2017 10:45 Manafort segist saklaus af öllum ákærunum Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Trump, og viðskiptafélagi hans lýstu sig saklausa af ákærum fyrir fyrir samsæri gegn Bandaríkjunum, peningaþvætti og skattsvik, er þeir komu fyrr rétt í Washingon í dag. 30. október 2017 18:42 Búast við handtöku vegna Rússarannsóknarinnar Ákærudómstóll samþykkti fyrstu ákærurnar vegna rannsóknarinnar á föstudaginn. 30. október 2017 08:45 Trump-liðar ákærðir fyrir tólf lögbrot Fyrstu ákærurnar í rannsókn sérstaks saksóknara á tengslum rússneskra yfirvalda við forsetaframboð Donalds Trump líta dagsins ljós. 31. október 2017 06:00 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Manafort ákærður fyrir samsæri gegn Bandaríkjunum og peningaþvætti Ekkert sem varðar forsetaframboð Donalds Trump kemur fram í fyrstu ákærunni sem er gefin út í rannsókn á afskiptum Rússa af forsetakosningunum í Bandaríkjunum í fyrra. 30. október 2017 13:48
Hlakkar í þáttastjórnendum: „It's Mueller time“ Stjórnendur kvöldþátta í Bandaríkjunum fóru yfir nýjustu vendingar Rússarannsóknarinnar svokölluðu í gær. 31. október 2017 10:45
Manafort segist saklaus af öllum ákærunum Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Trump, og viðskiptafélagi hans lýstu sig saklausa af ákærum fyrir fyrir samsæri gegn Bandaríkjunum, peningaþvætti og skattsvik, er þeir komu fyrr rétt í Washingon í dag. 30. október 2017 18:42
Búast við handtöku vegna Rússarannsóknarinnar Ákærudómstóll samþykkti fyrstu ákærurnar vegna rannsóknarinnar á föstudaginn. 30. október 2017 08:45
Trump-liðar ákærðir fyrir tólf lögbrot Fyrstu ákærurnar í rannsókn sérstaks saksóknara á tengslum rússneskra yfirvalda við forsetaframboð Donalds Trump líta dagsins ljós. 31. október 2017 06:00