Árásarmaðurinn í París handtekinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 9. ágúst 2017 15:00 Mikill aðbúnaður lögreglu var við Place de Verdun í morgun eftir að tilkynning barst um árásina. Vísir/AFP
Lögregla í Frakklandi hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa ekið á hóp hermanna í París í morgun. Maðurinn var skotinn niður og að því búnu handtekinn eftir „dramatískan“ bílaeltingarleik, að því er fram kemur í frétt BBC. Lögregla elti manninn sem keyrði rakleiðis af vettvangi eftir áreksturinn og út á A16-hraðbrautina í norðurhluta Frakklands. Þar var maðurinn skotinn niður en BMW-bifreiðin sem maðurinn ók var alsett byssukúlum eftir viðureignina við lögreglu. Sex hermenn særðust í árásinni í morgun, tveir alvarlega, er þeir voru keyrðir niður við Place de Verdun, ekki langt frá ráðhúsi sveitarfélagsins Levallois-Perret í norðvesturhluta Parísar. Enginn hermannanna er þó talinn í lífshættu. Einn lögreglumaður er sagður hafa særst við eftirförina. Þá rakst bifreið hins handtekna utan í aðrar bifreiðar við eltingarleikinn. Talið er að ákeyrslan í morgun hafi verið að ásettu ráði. Maðurinn sem lögregla skaut niður og handtók vegna gruns um verknaðinn er á fertugsaldri.
Tengdar fréttir Ekið á sex hermenn í París Lögreglan leitar nú ökumannsins. 9. ágúst 2017 07:41 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira