Lögmaður Trump segir forsetann ekki til rannsóknar Kjartan Kjartansson skrifar 18. júní 2017 14:31 Donald Trump virtist staðfesta að hann væri til rannsóknar á föstudag en nú segir lögmaður hans annað. Vísir/EPA
Einn lögmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta heldur því fram að forsetinn sé ekki til rannsóknar vegna mögulegrar hindrunar á framgangi réttvísinnar. Stangast það á við frétt Washington Post og orð forsetans sjálfs. „Leyfðu mér að tala skýrt, eins og það hefur verið frá upphafi, þá er forsetinn ekki og hefur ekki verið til rannsóknar vegna hindrunar,“ sagði Jay Sekulow, einn lögmanna Trump í viðtali við NBC-sjónvarpsstöðina í dag og Washington Post hefur eftir. Washington Post hafði það eftir fimm ónafngreindum háttsettum embættismönnum í síðustu viku að Trump væri til rannsóknar fyrir mögulegar tilraunir til að hafa áhrif á rannsókn alríkislögreglunnar á mögulegum tengslum samstarfsmanna hans við Rússa.Sjá einnig: Trump segist vera til rannsóknar fyrir að hafa rekið Comey Trump staðfesti sjálfur að hann væri til rannsóknar á Twitter á föstudag. „Það er verið að rannsaka mig,“ tísti forsetinn meðal annars.Vitnaði til orða Comey á meðan hann var yfir FBISekulow sagði tístið hins vegar hafa verið svar við frétt Washington Post. Hann væri ekki til rannsóknar hjá Robert Mueller, sérstökum rannsakanda dómsmálaráðuneytisins á Rússatengslunum. Vísaði lögmaðurinn meðal annars til framburðar James Comey, sem Trump rak sem forstjóra FBI og er líklega ástæða þess að forsetinn gæti verið til rannsóknar. Hann sagði þingnefnd í þarsíðustu viku að hann hefði sagt Trump í þrígang að hann væri ekki sjálfur til rannsóknar. Comey tók hins vegar sérstaklega fram að hann vissi ekki hvað hefði gerst frá því að hann var rekinn. Ástæðan fyrir því að hann vildi ekki lýsa því yfir að Trump væri ekki til rannsóknar, eins og forsetinn þrýsti á hann að gera, væri meðal annars sú að þá hefði FBI haft skyldu til að leiðrétta það ef sú staða breyttist.
Bandaríkin Donald Trump Rússarannsóknin Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira